Sigling Chelsea undir stjórn Tuchel heldur á­fram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það er létt yfir þeim bláklæddu í Lundúnum.
Það er létt yfir þeim bláklæddu í Lundúnum. Adrian Dennis/Getty

Chelsea er á góðri siglingu undir stjórn Thomas Tuchel. Liðið vann í kvöld 2-0 sigur á Newcastle á heimavelli og á enn eftir að tapa leik undir stjórn þess þýska.

Oliver Giroud kom inn á sem varamaður á tuttugustu mínútu og ellefu mínútum síðar var hann búinn að skora. Eftir fyrirgjöf Timo Werner féll boltinn fyrir Frakkann sem skoraði.

Werner tvöfaldaði forystuna á 38. mínútu. Markaþurrð hans á enda. Eftir skalla Giroud féll boltann fyrir þann þýska sem kom boltanum í netið.

Werner hafði ekki skorað í nákvæmlega eitt þúsund mínútur eða síðan hann skoraði gegn Sheffield United í nóvember. 31 skottilraunir en ekkert mark. Stíflan brást í kvöld.

Staðan var 2-0 í hálfleik en ekkert mark var skorað í síðari hálfleiknum og fimmti sigur Chelsea í röð í öllum keppnum.

Chelsea er komið í fjórða sætið, með 42 stig. Newcastle er í sautjánda sætinu, sjö stigum frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira