Erfið fæðing en þrjú stig hjá City í rigningunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
City er á toppnum, um stundarsakir að minnsta kosti, eftir 2-0 sigurinn í dag.
City er á toppnum, um stundarsakir að minnsta kosti, eftir 2-0 sigurinn í dag. Martin Rickett/Getty

Manchester City er á toppnum, að minnsta kosti fram á kvöld, eftir 2-0 sigur á Aston Villa í kvöld. City er með 38 stig, jafn mörg og grannar sínar í United sem eiga þó leik til góða, en Villa er í ellefta sætinu, með 26 eftir sextán leiki.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð fjörugur. Bæði lið fengu sín færi í leiknum en ekkert mark var skorað áður en Jonathan Moss, dómari leiksins, flautaði til hálfleiks.

Svipað var uppi á teningnum í síðari hálfleik. City var eðlilega meira með boltann en Villa átti flottar skyndisóknir og sköpuðu sér ágætis hættufæri ásamt því að verjast fimlega.

Ilkay Gundögan fékk gott færi eftir klukkutíma leik og Phil Foden fékk einnig færi. Það var ellefu mínútum fyrir leikslok sem fyrsta markið kom en Bernardo Silva skoraði þá með þrumuskoti.

Villa menn voru ósáttir og vildu fá rangstöðu í aðdragandanum. Þeim var svo heitt í hamsi að Dean Smith, þjálfara Villa, var gefið rautt spjald.

Á lokamínútu venjulegs leiktíma tvöfölduðu heimamenn forystuna. Matty Cash fékk boltann í höndina eftir skalla Gabriel Jesus og vítaspyrna dæmd. Ilkay Gundögan skoraði úr vítaspyrnunni og lokatölur 1-0.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira