Gefa börnunum ofvirknilyf á daginn og svefnlyf á nóttunni María Lilja Þrastardóttir skrifar 15. maí 2013 07:00 Ólafur Guðmundsson yfirlæknir á BUGL.
Borið hefur á að foreldrar barna með ADHD noti svefnlyf eða geðrofslyf fyrir börn sín vegna svefnvandamála sem stundum má rekja beint til aukaverkana ofvirknilyfja. Landlæknisembættið hefur áhyggjur af ofskömmtun. Dæmi eru um að foreldrar barna með ofvirkni og athyglisbrest (ADHD) noti geðrofslyf eða önnur svefnlyf til að vega á móti svefnvanda sem er algengur fylgifiskur sjúkdómsins. Oft má þó rekja vandann beint til ofvirknilyfja og aukaverkana þeirra. „Við höfum áhyggjur af að verið sé að gefa börnum með svefnvanda svefnlyf og erum því að skoða þetta. Við erum líka að sjá notkun geðrofslyfja í sama tilgangi og teljum slíkt geta verið mjög alvarlegt. Slík notkun getur hæglega leitt til ofskömmtunar,“ segir Magnús Jóhannsson læknir, sem hefur eftirlit með lyfjaávísunum hjá Landlækni. Svefntruflanir eru algengar hjá börnum með ADHD. Þau eru oft óróleg í svefni og hvílast því illa. Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild (BUGL), segir hefðbundin svefnlyf sjaldan notuð hjá börnum. Þess í stað sé notast við svokölluð andhistamínlyf eða ofnæmislyf með slævandi aukaverkunum eins og til dæmis Phenegan. Það slær á ofnæmisviðbrögð en hefur einnig umtalsverð róandi og svæfandi áhrif og er því oft ávísað sem svefnlyfi. Hann staðfestir aðspurður að einnig sé notast við geðrofslyfin Risperídón og Aríprírpazol. Geðrofslyfin eru eins og nafnið gefur til kynna notuð við alvarlegu geðrofi hjá fullorðnum. Verkun þeirra er mjög slævandi. Samkvæmt lyfjaskrá eru mögulegar aukaverkanir lyfjanna fjölmargar og langvarandi notkun þeirra getur haft alvarleg áhrif á taugakerfið.
Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira