Bon Jovi bauð Sigga Hlö og eiginkonu á tónleika 6. ágúst 2011 08:00 Siggi Hlö smellti að sjálfsögðu mynd af Bon Jovi þar sem hann stóð uppi við sviðið. „
Þetta er öðlingur. Rosalega fínn gæi og jarðbundinn. Þetta var eins og að hitta frænda sinn á svipuðum aldri," segir útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö. John Bon Jovi, söngvari rokksveitarinnar heimsfrægu Bon Jovi, bauð Sigga og eiginkonu hans á tónleika sína á Ólympíuleikvanginum í Barcelona í síðustu viku. Ástæðan var sú að kona Sigga, Þorbjörg Sigurðardóttir sem starfar hjá Nordic Visitor, skipulagði frí Bon Jovi hér á landi fyrr í sumar. Hjónakornin voru uppi við sviðið á tónleikunum, fengu óheftan aðgang baksviðs og voru hreinlega eins og kóngar í ríki sínu. „Þegar mig langaði í bjór á miðjum tónleikum fór ég bara í búningsherbergið hans og sótti mér. Þetta var ótrúlegasta lífsreynsla af þessu tagi sem ég hef lent í. Allir verðirnir færðu sig bara þegar ég kom labbandi. Það vissu allir að við værum „special guests of Mr. John". Þetta var bara eins maður sér í bíómyndum," segir Siggi, enn í skýjunum yfir öllu saman. Hann kom sjálfur færandi hendi baksviðs og gaf Bon Jovi og fjölskyldu hans fatnað frá 66° Norður sem söngvarinn var gríðarlega ánægður með. Siggi hitti Bon Jovi einnig þegar hann var staddur hér á landi og fór því vel á með þeim í Barcelona „Hann var svo uppnuminn yfir ferðinni hingað að hann talaði ekki um annað," segir hann og bætir við að Bon Jovi dauðlangi að koma aftur til Íslands. „Hann sagði mér hvað konan mín væri frábær. Ég þóttist nú vita það enda búinn að eiga hana í 23 ár," segir hann og hlær. -fb
Mest lesið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira