Icelandair skaðabótaskylt: Fór loftköstum í vélinni Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 29. janúar 2015 17:53 Slysið gerðist árið 2009 og á sér nokkuð langa forsögu. Vélin var á leiðinni til Keflavíkur frá London.
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir flugfélaginu Icelandair en félagið var í maí dæmt skaðabótaskylt vegna örorku sem flugfreyja félagsins hlaut af völdum slyss í einni flugvéla flugfélagsins í ágúst 2009. Icelandair mótmælti lýsingum flugfreyjunnar á því hvernig slysið atvikaðist og um það stóð ágreiningur og hvort félagið bæri skaðabótaábyrgð á tjóni konunnar. Líkamstjón hennar var metið til fimmtán prósent varanlegrar örorku og fimmtán stiga miska, en um það var ekki ágreiningur. Icelandair áfrýjaði því dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.Í loftköstum upp undir þak vélarinnar Konan lýsti slysinu þannig að hún hafi farið „í loftköstum upp undir þak vélarinnar áður en hún hafi dottið harkalega aftur fyrir sig“ þegar véin lenti í ókyrrð. Hún hafi lent illa á baki, hálsi og höfði og misst meðvitund um stund og verið vönkuð eftir það. Hún sagði flugmanninn hafa skyndilega togað í stýri vélarinnar til að reisa hana við þegar hraðinn jókst verulega vegna vindhvarfa í aðdraganda lendingar. Hún sagði flugstjórnendur vélarinnar hafa með þessu sýnt af sér saknæma háttsemi við stjórn vélarinnar og að Icelandair bæri á því vinnuveitendaábyrgð.Sjá einnig: „Hvorki fyrr né síðar séð flugfreyju fara í slíkum loftköstum“Ekki gáleysi flugstjóra Hæstiréttur taldi að ekki yrði að meta flugstjóra vélarinnar það til gáleysis að hafa ekki varað við mikilli ókyrrð og því hefði hann ekki brotið gegn reglugerð um mannflutninga í loftförum með því að fyrirskipa ekki notkun öryggisbelta greint sinn. Þó var talið að slys konunnar teldist flugslys eða að minnsta kosti alvarlegt flugatvik í ljósi afleiðinga slyssins og þess að hraði vélarinnar jókst verulega vegna vindhvarfa sem hún lenti í. Tilkynningar Icelandair til Flugmálastjórnar Íslands í kjölfar slyssins hefðu hins vegar ekki gefið það til kynna og því ekki verið fullnægjandi. Því hefði ekki farið fram rannsókn á því hvort rekja mætti slys konunnar til saknæmrar háttsemi flugstjórnenda umrætt sinn. „Í ljósi þeirrar vanrækslu á tilkynningarskyldu sinni yrði áfrýjandi að bera hallann af sönnunarskorti um orsakir slyssins,“ segir í niðurstöðu dómsins.Flugstjórnendur könnuðust ekki við lýsingarnar Flugstjóri og flugmaður vélarinnar könnuðust ekki við að vélin hafi misst hæð og högg hafi komið á vélina með þeim afleiðingum að einhver hafi getað kastast til. Í kröfu Icelandair í dómi héraðsdóms er vitnað í flugmanninn: „Það eina sem hafi gerst er að vélin hafi lent í skotvindi sem hafi leitt til þess að hann hafi þurft að grípa inn í í nokkrar sekúndur til að koma í veg fyrir að hraði vélarinnar yrði of mikill. Aðspurður taldi hann nær útilokað að stefnandi hefði getað tekist á loft og kastast niður af þessu tilefni.“ Einnig er vitnað í flugstjórann. Hann sagði í skýrslu fyrir dómi „að aðstæður í flugi hefðu verið góðar og ferðin ósköp venjulegt síðsumarsflug að öðru leyti en því að þurft hafi að handfljúga vélinni um stund. Hann kannaðist ekki við að nein ókyrrð hefði verið í lofti, vélin hefði ekki misst hæð og hvorki verið steypt né hafi hún ofrisið. Þá kvaðst hann ekki hafa fundið fyrir neinu höggi þegar vélin var tekin af sjálfstýringunni.“ Í niðurstöðu dómsins kemur fram að ekki sé ágreiningur um að flugfreyjan hafi orðið fyrir líkamstjóni. Icelandair hafði þegar fallist á að greiða flugfreyjunni 3,2 milljónir króna úr slysatryggingu félagsins, en hafnaði því að greiða henni bætur úr ábyrgðatryggingu Icelandair, enda viðurkenndi félagið ekki að það ætti að bera kostnað vegna málsins. Skaðabótaskylda flugfélagsins var viðurkennd en ekki tilgreind í dómnum. Flugfélaginu er gert að greiða 2,5 milljónir króna í málskostnað fyrir Hæstarétti sem renna í ríkissjóð. Þá greiðist gjafsóknarkostnaður konunnar úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar 2,5 milljónir króna.
Tengdar fréttir „Hvorki fyrr né síðar séð flugfreyju fara í slíkum loftköstum“ Icelandair hefur verið dæmt skaðabótaskylt í máli þar sem flugfreyja kastaðist til og skall á gólf vélarinnar með þeim afleiðingum að hún hlaut varanlega örorku. 5. maí 2014 14:32 Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Sniglar hægja á umferð Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Fleiri fréttir Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Sjá meira
„Hvorki fyrr né síðar séð flugfreyju fara í slíkum loftköstum“ Icelandair hefur verið dæmt skaðabótaskylt í máli þar sem flugfreyja kastaðist til og skall á gólf vélarinnar með þeim afleiðingum að hún hlaut varanlega örorku. 5. maí 2014 14:32