Birgitta Haukdal flytur með fjölskylduna til Spánar 30. júní 2011 11:15 Söngkonan Birgitta Haukdal er að flytja til Barcelona þar sem eiginmaður hennar er á leið í nám. Fyrsta verk hennar verður að skrá sig í spænskuskóla. Mynd/Anton Brink „
Við förum í ágúst og dveljum í tvö ár,“ segir söngkonan Birgitta Haukdal, en hún og fjölskylda hennar hafa ákveðið að flytja til Barcelona. Í Barcelona ætlar eiginmaður Birgittu, Benedikt Einarsson, í nám í viðskiptafræði en hann er lögfræðingur að mennt. Birgitta segir að hún verði þó með annan fótinn á Íslandi til að byrja með. „Ég er með alls konar gigg bókuð hér á landi og er að vinna að því að klára plötuna mína, svo ég verð á flakki á milli Íslands og Spánar fyrsta hálfa árið. Þegar ég klára þessi verkefni, stefni ég bara á að verða eins og innfædd,“ segir Birgitta og hlær, og útskýrir að fyrsta verkefnið í Barcelona verði að skrá sig í spænskuskóla. „Ég er ekki með neinn grunn í spænsku, en maðurinn minn fór í spænskuskóla sem unglingur og hann hefur hjálpað mér að pikka upp eina og eina setningu,“ segir Birgitta. Fjölskyldan gerði sér ferð til Barcelona fyrir tveimur vikum í leit að húsnæði. „Við fundum okkur íbúð í æðislega góðu hverfi. Það er ótrúlega fallegur garður rétt hjá, með leikvöllum og kaffihúsum og ég er bara orðin rosalega spennt,“ segir Birgitta. Hún segist ekki vita hvort hún ætli sér í frekara nám ytra. „Þetta verður eiginlega bara allt að koma í ljós. Ég þarf bara að klára verkefni mín hér heima, koma syninum á leikskóla og koma fjölskyldunni almennilega fyrir úti. En spænskuskóli er klárlega fyrsta skrefið.“ Áður en Birgitta heldur til Barcelona, ætlar hún að skella sér á Mærudaga á Húsavík undir lok júlímánaðar. Þar ætlar hún að syngja með Greifunum sem eiga aldarfjórðungsafmæli í ár. „Það verður virkilega gaman að syngja með þeim. Þeir eru frá Húsavíkinni, eins og ég, og við Viddi [Kristján Viðar Haraldsson] höfum þekkst í mörg ár og erum góðir vinir,“ segir Birgitta. Spurð að því hvaða lög verði sungin, gefur Birgitta lítið upp. „Ég mun allavega syngja eitt Greifalag. Annað á eftir að koma í ljós.“kristjana@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira