Óli Palli með fjölskyldunni á Hróarskeldu 30. júní 2011 12:00 Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður í rigningunni á Hróarskeldu árið 2007. „
Við erum mjög spennt. Þetta er alltaf jafn skemmtilegt,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður og Hróarskelduaðdáandi með meiru. Ólafur Páll, eða Óli Palli eins og hann er oftar kallaður, tekur konu sína og dóttur með sér á Hróarskeldu í ár, en hátíðin hefst að fullu í dag. „Konan hefur komið nokkrum sinnum með mér og stelpan kom fyrst með árið 2007,“ segir Óli Palli, sem sjálfur hefur verið fastagestur á Hróarskeldu frá árinu 1996. Hátíðin í ár hefur hlotið gagnrýni fyrir að vera ekki með nógu margar þekktar hljómsveitir, en þekktustu böndin í ár eru Arctic Monkeys, Kings of Leon og Iron Maiden. „Dagskráin hefur oft verið litskrúðugri og flottari, en þetta er allt í góðu. Maður verður oftast ánægðastur með það sem maður hálfpartinn sá óvart og hafði ekki ætlað sér að sjá,“ segir Óli Palli, en bætir við að það hefði ekki verið verra að sjá listamenn á borð við Nick Cave, Neil Young og Bob Dylan eða hljómsveitina U2. „Ég held að ég sé spenntastur fyrir Iron Maiden, þó svo að ég hafi séð þá þrisvar eða fjórum sinnum áður,“ segir Óli Palli. Hann segir fjölskylduna ekki ætla að tjalda í ár. „Við höfum stundum verið í tjaldi en við erum með íbúð inni í Hróarskeldu núna, hún er í göngufæri við hátíðarsvæðið. Það er algjör lúxus,“ segir Óli Palli, sem flaug til Danmerkur í gær.- ka
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira