Línurnar að skýrast hjá Tarantino 30. júní 2011 10:00 Tarantino hefur klófest bæði Leonardo DiCaprio og Jamie Foxx en þeir munu leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni Django Unchained.
Quentin Tarantino hefur klófest bæði Leonardo DiCaprio og Jamie Foxx fyrir kvikmynd sína Django Unchained. Fréttir af myndinni eru frekar óljósar en samkvæmt vefsíðunni contactmusic.com er um að ræða vestra, innblásinn af spagettívestranum Django eftir Sergio Corbucci. „Mig hefur alltaf langað til að gera mynd um svartasta blettinn á sögu Bandaríkjanna; þrælahaldið. En ég vil ekki gera það á dramatískan hátt heldur með því að notast við vestraformið," hafði Daily Telegraph eftir Tarantino fyrir fjórum árum.Og nú virðist þessi hugmynd Tarantinos ætla að verða að veruleika. Foxx mun taka við hlutverkinu af Will Smith sem var fyrst orðaður við myndina en gaf það frá sér vegna anna á öðrum vígstöðvum. Meðal annarra leikara í myndinni má nefna Christoph Waltz sem aðdáendur Tarantinos ættu að muna eftir úr Inglourious Basterds og Samuel L. Jackson en hann er fastagestur í kvikmyndum Tarantinos þegar slíkt á við. Myndin segir sögu þrælsins Djangos sem hyggur á hefndir er hann sleppur úr klóm kvalara síns. Sá verður leikinn af DiCaprio en Tarantino hefur einstakt lag á að fá stjörnur til að snúa baki við fyrirfram ákveðinni ímynd. DiCaprio hefur til að mynda ekki oft leikið ofbeldisfull illmenni en í Django Unchained leikur hann sadískan plantekrubónda sem kúgar þræla sína með miskunnarlausu ofbeldi.- fgg
Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Lífið Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman Lífið Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Lífið samstarf Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Sjá meira