Lífið

Konungur næturinnar skemmtir sér með myndavélinni

Sveinbjörn Gísli, eða Sveinbi, hefur starfrækt vefsíðuna superman.is frá 2006. Þar eru birtar myndir af reykvískum ungmennum á djamminu. Fréttablaðið/HAG
Sveinbjörn Gísli, eða Sveinbi, hefur starfrækt vefsíðuna superman.is frá 2006. Þar eru birtar myndir af reykvískum ungmennum á djamminu. Fréttablaðið/HAG
„Ég var alltaf úti á lífinu og eins og gengur og gerist þá tók ég með mér myndavél og fór að taka myndir af fólkinu. Það var síðan 2006 að ég ákvað að fara að gera eitthvað úr þessu,“ segir Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson ljósmyndari.

Sveinbjörn, eða Sveinbi Súperman eins og hann er gjarnan kallaður, hefur starfrækt vefsíðuna superman.is síðastliðin fimm ár. Þar birtir hann myndir af ungu fólki á skemmtistöðum Reykjavíkur og nýtur síðan töluverðra vinsælda. Myndirnar gefa ágætis vísbendingu um hvernig næturlífið í höfuðborginni er, en eins og Sveinbi kemst sjálfur að orði: „Þar sem er fólk, þar er ég.“

Ljósmyndarinn viðurkennir að starfið sé erfitt, það sé ekki létt að þvælast á milli næturklúbba og knæpa í miðborginni og taka myndir af fólki. Og starfið gefur ekkert sérstaklega vel af sér í aðra hönd. „Það er allt of lítill peningur í þessu miðað við þá vinnu sem ég legg í þetta.“

Þótt ljósmyndarinn sé oft í kringum áfenga drykki og ölvað fólk er hann sjálfur edrú. Hann fór í meðferð fyrir tíu árum og finnst það lítið tiltökumál að eyða helgunum á næturlífinu. „Það er ekkert erfitt, ég er búinn að prófa mig áfram. Ég fór mikið út á lífið áður en ég eignaðist myndavélina og nú er þetta bara mín leið til að skemmta mér.“

Sveinbi lendir mjög sjaldan í því að fólk sé með vesen út af myndatökum og í langflestum tilvikum biður fólk hann um að smella af sér mynd. Kossamyndir milli tveggja stúlkna voru oft á tíðum áberandi á síðunni en þeim hefur fækkað mikið. Sveinbi segir þær þó alltaf slæðast með og séu þá vinsælar. „Fólk heldur oft að ég sé að biðja um þetta en það er af og frá, ég er enginn perri. Stelpurnar gera þetta óumbeðnar í von um smá athygli.“

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.