Þetta verður mikil upplifun 29. júlí 2005 00:01
Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflavíkur, leist vel á andstæðing liðsins í 2. umferð forkeppni UEFA-bikarkeppninnar en dregið var í keppninni í gær. Keflavík gat mætt fimm liðum, þremur Norðurlandaliðum, Dundee frá Skotlandi og Mainz frá Þýsklandi. Keflvíkingar mæta því síðastnefnda sem er klárlega sterkasta liðið af þeim fimm enda leikur það í efstu deild, Búndesligunni, í Þýskalandi. "Það verður mikil upplifun að fá að taka þátt í þessu ævintýri," sagði Guðmundur. "Það er klárt að báðir þessir leikir verða erfiðir, hvort sem er á útivelli eða hér heima." Aðspurður segir Guðmundur að hann hafi ekki átt neitt óskamótherja áður en drátturinn fór fram. "Það hefði líka verið skemmtilegt að fá FC Kaupmannahöfn og leika á Parken. Þá held ég að okkar stærstu möguleikar að fara áfram hafi legið í að mæta Dundee frá Skotlandi. En þótt Mainz sé mjög sterkt lið byrjar leikurinn í stöðunni 0--0 og það eru ellefu leikmenn í báðum liðum. Það er aldrei að vita hvað gerist," sagði Guðmundur. Í fyrstu umferð mættu Keflvíkingar liði Etzella frá Lúxemborg og vann liðið tvo fremur auðvelda sigra og samanlagt 6--0. Árangur var reyndar metjöfnun íslensks félagsliðs í markaskorun í Evrópukeppninni. Þar var það Hörður Sveinsson sem skoraði fimm marka liðsins en þrátt fyrir mörg góð færi virtist Guðmundi hreinlega fyrirmunað að skora í leiknum. "Þetta voru tvö stangarskot og svo smaug boltinn rétt fram hjá í eitt skiptið," segir Guðmundur. "En leikurinn hér heima gekk ágætlega, sérstaklega í síðari hálfleik." Aðeins Guðmundur og Gestur Gylfason hafa tekið þátt í Evrópukeppninni og því er um frumraun annarra í Keflavíkurliðinu um að ræða. "Þetta verður mikil upplifun. Við munum spila á velli í Þýsklandi sem verður notaður á HM á næsta ári og var einmitt notaður í Álfukeppninni nú fyrr í sumar. Þetta er alvöru völlur og ekki væri verra að fá nokkra áhorfendur á leikinn."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira