Daniel Radcliffe galdramaður í miðasölu 17. desember 2011 12:00 Daniel Radcliffe (1,3 milljarðar) Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið í einni mynd á árinu trónir Daniel Radcliffe á toppi listans. Harry Potter-gengið samanstendur auðvitað af þremur leikurum, Radcliffe, Emmu Watson og Ron Weasley, en engum sem séð hefur síðustu Potter-myndina dylst að þetta er myndin hans Radcliffe; hann er nánast í hverri einustu senu. Nordic Photos/getty
Bandaríska fjármálatímaritið Forbes hefur tekið saman lista yfir þá leikara sem trekktu hvað mest að í bíó, hvað peninga varðaði. Fáum kemur á óvart að þar skuli Daniel Radcliffe, sjálfur Harry Potter, tróna á toppnum. Forbes skoðaði þær kvikmyndir sem voru vinsælastar á árinu og hvaða leikarar báru þær uppi. Og komust þá að þessari, nánast eðlilegu, niðurstöðu að Daniel Radcliffe væri sá leikari sem skilaði besta búinu í Hollywood þetta árið. Radcliffe og LaBeouf verða hins vegar eflaust báðir víðsfjarri þegar árið 2012 verður gert upp, Harry Potter hefur sagt sitt síðasta og LaBeouf vill ekki leika oftar í Transformers. Forbes telur því líklegt að Tom Cruise og Daniel Craig muni taka sér sæti í efri lögum listans; Cruise muni njóta góðs af Mission Impossible-æðinu sem mun ganga yfir heiminn og Craig verður hvorki slyppur né snauður þegar Karlar sem hata konur og Skyfall hafa verið gerðar upp. Athygli vekur að Forbes velur þrjár stjörnur í fimmtu Fast and the Furious-myndinni, þá Paul Walker, Vin Diesel og Dwayne Johnson. Þá eru tveir leikarar úr annarri Hangover-myndinni á listanum og jafnmargir úr síðustu Twilight-mynd, Breaking Dawn. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Hvað veistu um… One Direction? Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Tónlist Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Fleiri fréttir „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Sjá meira