Svavar ánægður með Kaupmannahafnarfundinn 19. mars 2008 15:36 Svavar Gestsson, sendiherra í Kaupmannahöfn.
Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, segir að ráðstefnan um íslensk efnahagsmál sem haldin var þar í borg í síðustu viku hafi verið sérstaklega vel heppnuð. Húsfyllir var og komust færri að en vildu. Nokkuð hefur verið fjallað um dræmar undirtektir danskra fjölmiðla á málinu og talað um að fundurinn hafi ekki verið nægilega vel kynntur. Sendiráðið kom að skipulagningu fundarins og segir Svavar að þar á bæ séu menn ánægðir með árangurinn. „Fundurinn var mjög vel kynntur sem sást á því að það var troðfullt hús. Við bjuggumst við 80 til 90 manns og á endanum mættu á bilinu 160 til 170. Við þurftum að bregða á það ráð að taka niður skilrúm á milli tveggja sala til að rúma fjöldann," segir Svavar í samtali við Vísi. Hann segir að á fundinn hafi mætt fulltrúar fjölmiðla auk fólks úr viðskiptalífinu í Danmörku. Svavar segist undrast umræðu á Íslandi um lítinn áhuga danskra fjölmiðla. „Það var í raun meiri dekkun á þessum fundi en á mörgum öðrum sambærilegum, meðal annars birtist mikil umfjöllun um hann í Berlingske svo dæmi sé tekið." Aðspurður hve mikil áhersla hafi verið lögð á að kynna fundinn segir Svavar að sú vinna hafi verið meiri en oft áður, „sem skilaði sér í þessari gríðarlegu aðsókn." Svavar segir að kynningarmálin fyrir fundinn hafi verið unnin í sendiráðinu auk þess sem viðskiptaráð hafi komið þar að málum. Þá voru dönsk ráðgjafafyrirtæki einnig höfð með í ráðum. „Við vorum mjög ánægð með þennan fund sem var satt að segja dálítill success, á góðri íslensku," sagði Svavar Gestsson, sendiherra í Kaupmannahöfn.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Innlent Fleiri fréttir Eftirköst almyrkvans og Rauðagerðismorðinginn laus úr haldi Fluttu veikan kajak-ferðalang Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Alin upp við að skrifa frekar skilaboð en að hringja „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Sjá meira