Úr lögfræði í lögguna Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 16. maí 2014 12:00 Áslaug segir það hafa tíðkast í gegnum tíðina að laganemar starfi hjá lögreglunni á sumrin. Mynd/úr einkasafni „
Mig langar að verða víðsýnni og nýta sumrin á meðan ég er í lagadeild til að prófa eitthvað nýtt,“ segir laganeminn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Hún hefur ráðið sig í sumarstarf hjá lögreglunni á Hvolsvelli og tekur til starfa í lok þessa mánaðar. „Þetta var búinn að vera leyndur draumur í smá tíma. Ég held að þetta sé mjög gefandi starf og felst mikið í að hafa samskipti við fólk. Ég held að þetta henti mér vel því ég er mjög félagslynd. Ég er mjög spennt fyrir þessu starfi því þetta getur bæði verið erfitt og gleðilegt. Ég er nokkuð lífsreynd eftir það sem ég hef gengið í gegnum þannig að ég tel mig geta sinnt þessu vel,“ segir Áslaug en hún ræddi opinskátt um veikindi í fjölskyldu sinni í þættinum Prófíl á PoppTV í síðasta mánuði. Áslaug segir ráðningarferlið hafa verið skemmtilegt og krefjandi en auk hefðbundins vinnuviðtals þurfti hún að þreita þrekpróf. „Þrekprófið var blanda af ýmsum stöðvaæfingum, hlaupi, sundi og ýmsu öðru. Það reyndi á en er alveg gerlegt fyrir þá sem eru ekki algjör sófadýr. Ég bjó allavega vel að því að hafa hreyft mig eitthvað,“ segir Áslaug glöð í bragði. Áslaug flytur til Hvolsvallar í sumar en býst við því að kíkja til Reykjavíkur í vaktafríum endrum og eins. Hún segir þessa reynslu líka nýtast sér í náminu. „Það hefur lengi tíðkast að laganemar starfi hjá lögreglunni yfir sumartímann. Faðir minn, Sigurbjörn Magnússon, gerði þetta lika á sínum tíma enda er þetta góð reynsla. Í laganáminu lærum við um margt sem tengist störfum lögreglunnar. Í þessu starfi er maður í samskipti við stóran hóp af fjölbreyttu fólki og ég er mjög spennt fyrir sumrinu.“
Tengdar fréttir "Móðurmissirinn - maður gat aldrei búið sig undir hvað það var erfitt" Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tjáir sig opinskátt um öll áföllin sem dundu á fjölskyldu hennar. "Það er ekkert réttlátara að aðrir fái þessi verkefni en við. Það er bara að reyna að takast á við þetta með einhverjum hætti.“ 14. apríl 2014 16:52 Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Sjá meira
"Móðurmissirinn - maður gat aldrei búið sig undir hvað það var erfitt" Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tjáir sig opinskátt um öll áföllin sem dundu á fjölskyldu hennar. "Það er ekkert réttlátara að aðrir fái þessi verkefni en við. Það er bara að reyna að takast á við þetta með einhverjum hætti.“ 14. apríl 2014 16:52