Líkið fundið í Kaupmannahöfn 28. mars 2005 00:01
Kaupmannahafnarbúi, sem var að viðra hundinn sinn í morgun, fann líkið af manninum sem fætur og hönd fundust af á götu í Kaupmannahöfn í fyrradag. Líkið er sagt vera af Dana en lögregla hefur birt mynd af manninum í þeirri von að geta borið kennsl á hann. Líkið fannst snemma í morgun í húsasundi við íbúð númer 106 við Aðalgötu í miðborg Kaupmannahafnar. Það fannst nokkur hundruð metrum frá Klerkagötu þar sem líkamshlutarnir fundust við ruslagám snemma á laugardagsmorgun. Danskir fjölmiðlar hafa eftir lögreglunni í Kaupmannahöfn að líkið hafi verið í þremur hlutum þar sem það fannst við tröppur innst í sundinu. Líkið er sagt vera af dönskum karlmanni á fertugsaldri. Það hefur nú verið sent til krufningar en fyrstu rannsóknir gáfu til kynna að maðurinn hafi ekki verið myrtur í húsasundinu þar sem hann fannst. Fótleggjunum tveimur og handleggnum sem fundust á laugardagsmorgun virðist hafa verið stillt upp við bretti við iðnaðarruslagám, en framkvæmdir standa yfir á svæðinu. Fótleggir voru sagaðir af við læri og handleggur við olnboga. Lögregla segir lækni hafa metið það svo að sárin séu ekki á þeim stöðum sem tíðkist að miða við í krufningu. Þvert á móti séu áverkarnir unnir á viðvaningslegan hátt. Lögregla lýsir enn eftir vitnum og hvetur íbúa á svæðinu að hafa augun opin fyrir hlutum sem gætu tengst málinu. Nú rétt fyrir hádegið birti lögreglan mynd á Netinu af andliti mannsins í von um að geta borið kennsl á hann. Maðurinn var 190-195 sentímetrar á hæð, hvítur á hörund, á milli þrítugs og fertugs, skandinavískur í útliti með ljóst krullað hár, tyveggja daga gamla skeggbrodda og blágræn augu. Líkið af manninum var klætt í svartar nærbuxur. Ofbeldisfréttir hafa verið fyrirferðamiklar í dönskum fjölmiðlum um páskahelgina. Tveir menn voru skotnir í maga í Hundige-hverfinu í suðurhluta Kaupmannahafnar síðdegis á laugardag. Skotbardaginn var sá þriðji á svæðinu á vikutíma. Fjölmiðlar tala um stríð milli gengja og hefur sjónvarpsstöðin TV 2 heimildir fyrir því að uppgjör eigi sér stað í genginu Black Cobra. Tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gær vegna atburðarins, tvítugur Íraki og tæplega þrítugur maður frá Líbanon. Danskir netmiðlar hafa birt mynd af líkinu, þar á meðal Berlingske tidende.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira