Tvöfalt fleiri kærur vegna efnahagsbrota 29. október 2005 06:00 Jón H.B. Snorrason. Fjölgun starfsmanna efnahagsbrotadeildar er ekki í samræmi við fjölgun kærumála eða aukningu fjárframlaga. Yfirmaður deildarinnar segir að ákjósanlegast væri að fjölga starfsmönnum um allt að tíu. Það myndi draga úr starfsálagi og stytta þann tíma sem tekur að rannsaka hvert mál.
Fjárframlög til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra úr ríkissjóði hafa ríflega tvöfaldast á síðustu fimm árum. Fjárveiting til deildarinnar var í fyrra um 119 milljónir krónar en rúmar 58 milljónir 2001, samkvæmt upplýsingum frá Jóni H.B. Snorrasyni, yfirmanni efnahagsbrotadeildar. Fjöldi mála og starfsmannafjöldi hefur að sama skapi aukist. Árið 2001 bárust efnahagsbrotadeild 202 kærumál og störfuðu tólf manns við deildina. Árið 2004 voru málin 410 og starfsmennirnir fimmtán. Starfsmönnum hefur því fjölgað um fjórðung á sama tíma. Jón segir að aukin umsvif deildarinnar megi að mestu leyti skýra með því að eftirlitsstofnanir eins og fjármálaeftirlitið, skattrannsóknarstjóri og fiskistofa hafa aukið verulega eftirlit sitt. "Þessar stofnanir hafa verið styrktar og leiðir það til þess að kærumálum hjá okkur, sem koma að stórum hluta frá þessum stofnunum, hefur fjölgað verulega," segir Jón. Hann bendir á að jafnframt megi skýra hluta rekstrarfjáraukningarinnar með því að starfsmenn hafi fengið samtals um tuttugu prósenta launahækkun á tímabilinu. Aðspurður segir hann erfitt að bera umsvif íslensku efnahagsbrotadeildarinnar hlutfallslega saman við samsvarandi deildir á Norðurlöndunum. "Í Svíþjóð er embættið með vel á fimmta hundrað starfsmenn, í Noregi eru um 150 starfsmenn og í Danmörku eru starfsmenn um 120," segir Jón. Hann segir að efnahagsbrotadeild Svía sé skylt að taka fyrir öll þau mál sem til hennar berist en Norðmenn geti valið hvaða mál séu tekin til rannsóknar. "Í Noregi eru efnahagsbrotamál hjá lögreglu nema þau sem deildin tekur sérstaklega til sinnar rannsóknar," segir Jón. Á Íslandi rannsakar efnahagsbrotadeild öll skattamál því lögreglustjórarnir eru vanhæfir til þess því þeir eru innheimtumenn ríkissjóðs, að sögn Jóns. "Auk þess rannsökum við tollsvik og kærur frá Fjármálaeftirlitinu og einnig erfiðari og þyngri fjársvikamál," segir hann. Stjórnarandstaðan hefur haldið því fram á Alþingi undanfarin misseri að fjárframlög til efnahagsbrotadeildar séu ekki nægileg og að skortur á fjármagni valdi því að deildin geti ekki sjálf haft frumkvæði að rannsóknum. Aðspurður segist Jón sammála þessu sjónarmiði og segir það nokkuð óumdeilt. Hann segir erfitt að meta hversu mikið auka þurfi fjárframlög. "Það fer eftir því hvað menn vilja að við séum með nefið víða," segir hann. Ákjósanlegast væri þó að geta fjölgað starfsmönnum í tuttugu til tuttugu og fimm, það myndi draga úr starfsálagi og stytta þann tíma sem tekur að rannsaka hvert mál.
Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Sjá meira