Jóns Daða áhrifin í ensku b-deildinni sem við Íslendingar skiljum ekkert í Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2018 12:00 Jón Daði Böðvarsson. Vísir/Samsett/Getty
Síðan að Jón Daði Böðvarsson hóf að leika með íslenska fótboltalandsliðinu hafa strákarnir okkar komist inn á tvö stórmót í röð. Áhrif hans í ensku b-deildinni eru þó af allt öðrum toga eða svo segir gengi félaganna með og án hans. Hvaða Íslendingur elskar ekki duglegasta framherja íslenska landsliðsins fyrr og síðar? Jón Daði Böðvarsson hefur unnið sig upp í stórt hlutverk í íslenska landsliðinu sem er á leiðinni á HM í Rússlandi í sumar. Jón Daði hefur spilað í ensku b-deildinni undanfarin tvö tímabil, fyrst með Wolverhampton Wanderers og svo með Reading. Ísland hefur komist á tvö stórmót með hann innanborðs en aldrei án hans. Þess vegna skiljum við Íslendingar ekki Jóns Daða áhrifin í ensku b-deildinni. Wolverhampton Wanderers eða Wolves eins og við köllum Úlfana vanalega unnu sér um helgina sæti í ensku úrvalsdeildinni níu mánuðum eftir að liðið seldi Jón Daða Böðvarsson til Reading. Jón Daði hafði gert þriggja ára samning við Úlfana en lék aðeins með liðinu í eitt tímabil Reading keypti hann í júlí í fyrra. Tímabilið 2016-17 þá endaði Wolves í 15. sæti ensku b-deildarinnar og var 22 stigum frá því að komast í umspilið um þriðja og síðasta sætið í ensku úrvalsdeildinni. Reading endaði aftur á móti í 3. sæti deildarinnar og var aðeins átta stigum frá því að vinna sér beint sæti í ensku úrvalsdeildinni. Reading tapaði síðan fyrir Huddersfield Town í hreinum úrslitaleik umspilsins um sæti í úrvalsdeildinni. Í vetur var allt annað að sjá til liðanna tveggja. Wolves er með 12 stiga forskot á toppnum og hefur þegar tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2018-19 en Reading er aftur á móti í 19. sæti og aðeins fimm stigum frá fallsæti. Wolves hækkaði sig um fjórtán sæti eftir að liðið missti Jón Daða og Reading lækkaði sig um sextán sæti eftir að liðið fékk til sín Jón Daða. Það má alls ekki líta framhjá því að nýir kínverskir eigendur hafa tekið yfir Wolves og dælt peningum inn í félagið. Úlfarnir styrktu sig mikið, fengu nýja öflugan stjóra og eru til alls líklegir á næstu árum í ensku úrvalsdeildinni.Wolves og Reading með Jón Daða Böðvarsson innanborðs 2016/17 og 2017/18 Wolves - 15. sæti (16 sigrar og 58 stig) Reading - 19. sæti (10 sigrar og 43 stig)Wolves og Reading án Jóns Daða Böðvarssonar 2016/17 og 2017/18 Wolves - 1. sæti (29 sigrar og 95 stig) Reading - 3. sæti (26 sigrar og 85 stig) Það koma auðvitar margir aðrir þættir inn í þetta en frammistaða eins leikmanns. Jón Daði var vinsæll leikmaður hjá Úlfunum og hefur verið það líka hjá Reading. Vonandi fær okkar maður tækifæri á næstu árum til að hjálpa sínu liði upp í ensku úrvalsdeildina þangað sem gömlu liðsfélagar hans í Wolves munu spila á næstu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Sjá meira