Stjarna frá Aserbaídsjan í kynningarferð á Íslandi 7. apríl 2010 06:00 Ruslana og Safura Aserbaídsjan ætlar sér stóra hluti í keppninni í ár og fulltrúi þeirra, Safura Alizade, hyggst heimsækja Ísland í tengslum við keppnina. Ruslana kom hingað árið 2004 og sigraði í keppninni í kjölfarið.
Íslendingar eiga von á góðri heimsókn innan tíðar þegar poppstjarna frá Aserbaídsjan hitar upp fyrir Eurovision hér á landi. Safura Alizade, fulltrúi Aserbaídsjan í Eurovision, mun heimsækja Ísland í sérstakri kynningarherferð sem Eurovision-nefnd landsins hyggst blása til í tengslum við þátttökuna. Þetta kom fram á blaðamannafundi Safuru sem haldinn var í tilefni af því að tökur á myndbandi við lagið Drip Drop voru að hefjast. Fram kom að myndbandið yrði tilbúið til sýningar 25. apríl og að í kjölfarið yrði farið í mikla kynningarherferð þar sem Safura myndi heimsækja fjölmörg lönd í Evrópu, meðal annars Ísland, og syngja lagið sitt. Hera Björk Þórhallsdóttir, fulltrúi Íslands, hafði ekkert heyrt af þessari heimsókn Safuru til Íslands þegar Fréttablaðið bar þessar fréttir undir hana. „Nei, en ég á kannski eftir að heyra af því. Þetta væri bara frábært," segir Hera. Söngkonan frá Aserbaídsjan yrði ekki fyrsta erlenda Eurovision-stjarnan sem kæmi hingað til lands í þeim erindagjörðum að kynna bæði land sitt og þjóð. Og að sjálfsögðu lagið sitt. Ruslana kom hingað árið 2004 með lagið sitt Wild Dances og hélt vel sótta tónleika á Pravda á föstudaginn langa. Heimsóknin vakti mikla athygli því Ruslana flaug til landsins í einkaþotu og fékk meðal annars að hitta Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra. Íslenskir Eurovision-aðdáendur tóku Ruslönu vel og kunnu vel að meta lagið hennar sem sló eftirminnilega í gegn í Tyrklandi og sigraði að lokum. Íslandsheimsóknin virtist hafa skilað sér því Ruslana fékk tólf stig frá Íslandi og lagði þjóðin því sitt af mörkum til að tryggja henni sigur. Spurning hvort heimsókn Safuru skili henni svipuðum árangri. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið Lífið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Lífið samstarf Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira