Lífið

Neitar að hitta eiginkonuna

dennis hopper Eiginkona leikarans þarf að halda sig að minnsta kosti þremur metrum frá honum.
dennis hopper Eiginkona leikarans þarf að halda sig að minnsta kosti þremur metrum frá honum.

Bandarískur dómstóll hefur úrskurðað að eiginkona leikarans Dennis Hopper, Victoria, þurfi að halda sig að minnsta kosti þremur metrum frá honum.

Hinn 73 ára Hopper, sem er alvarlega veikur, vill ekkert með Victoriu hafa og hefur heitið því að hún fái ekki krónu í arf fari svo að hann lifi ekki af veikindi sín. Segja læknar Hoppers að samskipti við Victoriu hefðu í för með sér mikla streitu sem hann þarf ekki á að halda þessa dagana.

Þau hafa verið gift í fjórtán ár en skilnaður er nú í vændum. Hopper segir að eiginkonan hafi hagað sér sérlega illa síðasta árið og vísar í rifrildi þeirra um umgengnisrétt vegna sex ára dóttur þeirra, Galen. Victoria heldur því fram að leikarinn hafi reykt maríjúana fyrir framan dóttur þeirra, hótað henni og að hann sé ekki lengur hæfur til að taka u ákvarðanir. Þessu hefur hann vísað algjörlega á bug.

Hopper, sem hefur verið kvæntur fimm sinnum, er í lyfjameðferð þessa dagana vegna krabbameins í blöðruhálskirtli. „Við læknarnir mínir erum vongóðir um að þessi meðferð skili góðum árangri og að ég geti notið lífsins og starfsins á nýjan leik," sagði hann. Þekktustu myndir Hoppers eru Easy Rider, Apocalypse Now, Blue Velvet og Speed.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.