Snjóþyngsli töfðu útgáfu 10. desember 2010 10:00 Fjórða plata Benna er komin út, töluvert á eftir áætlun.
Fjórða plata Benna Hemm Hemm, Skot, er loksins komin út, rúmum mánuði á eftir áætlun. Ein af ástæðunum er hinn mikli snjóþungi sem hefur verið í Bretlandi upp á síðkastið en þar var gripurinn framleiddur. „Ég er löngu hættur að hafa áhyggjur af þessu en það að hún sé komin út gleður mig mikið,“ segir Benni, sem hefur verið búsettur í Skotlandi undanfarin ár. Hljómsveitin Retro Stefson sér um undirleik fyrir Benna á plötunni og var hann ánægður með framlag hennar. „Þau eru svo æðislegir krakkar. Þau tóku vel í mínar vinnuaðferðir en ég er dálítið harður hljómsveitarstjóri. Þau eru svo hæfleikarík að þau rúlluðu þessu upp.“ Fyrsta plata Benna, sem hét einfaldlega Benni Hemm Hemm, kom út árið 2006. Síðan hafa þær Kajak (2007) og Murta St. Calunga (2008) fylgt í kjölfarið en fyrir utan þær stóru hafa komið út nokkrar smáskífur. Benni segir nýju plötuna töluvert frábrugðna fyrri verkum sínum. Í þetta sinn skipti hann sér ekki eins mikið af tæknilegu vinnunni. „Ég ákvað að leyfa Bigga, upptökumanni í Sundlauginni, að sjá um þetta. Það var dálítið stórt skref fyrir mig að sleppa aðeins hendinni af þeim hluta. Það er líka allt annað fólk sem ég var að vinna með og lögin finnst mér dálítið mikið öðruvísi.“ Útgáfutónleikar vegna plötunnar verða haldnir á Bakkusi á laugardagskvöld en fyrr um daginn spilar Benni í Havaríi, kl. 16. Retro Stefson sér um undirleik fyrir Benna og Prinspóló og Bárujárn hita upp. Dj Öfull sér svo um tónlistina á Bakkusi fram undir morgun. Miðar fást í Havarí og kosta 1.000 kr. í forsölu. Miðaverð við hurð er 1.500 kr. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira