Real missteig sig á Alicante

Anton Ingi Leifsson skrifar
Caravajal grípur um höfuð sér í kvöld og í bakgrunni er Benzema hissa.
Caravajal grípur um höfuð sér í kvöld og í bakgrunni er Benzema hissa. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images

Real Madrid náði einungis í eitt stig á Alicante er liðið gerði 1-1 jafntefli við Elche á útivelli í sextándu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar.

Fyrsta mark leiksins kom á tuttugu mínútu en markið gerði Króatinn Luka Modric. 1-0 í hálfleik en Fidel Chaves jafnaði metin fyrir Elche úr vítaspyrnu á 52. mínútu.

Real Madrid hafði fyrir leik kvöldsins unnið fimm leiki í röð en þeir eru nú tveimur stigum á eftir Atletico Madrid sem á þó tvo leiki til góða.

Elche er í fimmtánda sætinu en bæjarsvæðið er hluti af Alicante.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira