Fótbolti

Guar­diola sagðist ekki þjálfa tæklingar en Sol­skjær virðist ekki þjálfa varnar­leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ole Gunnar Solskjær á hliðarlínunni í gær.
Ole Gunnar Solskjær á hliðarlínunni í gær. Matthew Peters/Getty Images

Pep Guardiola sagði á sínu fyrsta ári hjá Manchester City að hann þjálfaði ekki tæklingar. Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Man United, virðist hafa tekið þetta skrefi lengra og einfaldlega sleppt því að þjálfa varnarleik yfir höfuð.

Þátttöku Manchester United í Meistaradeild Evrópu er lokið á þessari leiktíð eftir 3-2 tap gegn RB Leipzig í Þýskalandi í gærkvöld. Man United nægði jafntefli til þess að komast áfram í 16-liða úrslit en þess í stað var liðið lent undir á 2. mínútu leiksins.

Á 13. mínútu var staðan orðin 2-0 og verkefnið allt í einu orðið nær ómögulegt. Að lenda í 3. sæti í riðli með Paris Saint-Germain, sem fóru í úrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð, og RB Leipzig, sem fóru í undanúrslit, er ekkert afhroð.

Varnarleikur – og markvarsla – United eftir að liðið komst í góða stöðu í riðlinum með sigrum gegn bæði PSG og RB Leipzig í fyrstu tveimur umferðum riðlakeppninnar er hins vegar áhyggjuefni. 

Sama má ef til vill segja um færanýtingu liðsins í 1-3 tapinu gegn PSG á Old Trafford sem og í Þýskalandi í gær.

Á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni var Pep Guardiola spurður út í tæklingar, það er skort á þeim. Lið hans hafði tapað 4-2 gegn Leicester City og varnarleikur liðsins var í molum.  Eftir leik var Pep spurður út í hvort leikmenn hans gætu ekki gert betur, til að mynda farið í fleiri tæklingar.

„Ég þjálfa ekki tæklingar,“ var svarið einfaldlega. Pep vildi einbeita sér að því að þjálfa – og kenna – að skapa færi, eitthvað sem City liðið hefur gert frábærlega allt þangað til á þessari leiktíð.

Að þjálfa – eða kenna – tæklingar er eitt en að þjálfa varnarleik er allt annað og mun mikilvægari hluti í fótbolta. Það hefur Pep gert mjög vel enda var varnarleikur City magnaður er liðið vann ensku úrvalsdeildina 2018 og 2019.

Þar var City með klárt leikplan hvernig ætti að spila vörn, hvað ætti að gera ef bolti tapaðist og þar fram eftir götunum. Pep fór yfir þetta á blaðamannafundi ári síðar, fyrir leik gegn Leicester ári eftir 4-2 tapið.

Það er ekki hægt að segja það sama um Manchester United þessa dagana. Liðið virðist ekki geta varist föstum leikatriðum til að bjarga lífi sínu og þá er skipulagið út á vellinum litlu skárra.

Southampton skoraði gegn Man Utd í ensku úrvalsdeildinni með fastri hornspyrnu á nærsvæðið þar sem vinstri bakvörðurinn Alex Telles missti af boltanum og Marcus Rashford missti af manninum sínum. West Ham United gerði slíkt hið sama en þá missti Anthony Martial af boltanum á nærsvæðinu, boltanum var flikkað á fjær þar sem áðurnefndur Telles hafði misst af manninum sínum.

Þá hefur Man Utd einnig fengið á sig mörk úr föstum leikatriðum í síðustu tveimur leikjum Meistaradeildarinnar þó aðeins annað þeirra hafi staðið. 

PSG skoraði annað mark sitt í 3-1 sigrinum á Old Trafford eftir að leikmenn Man Utd náðu ekki að hreinsa eftir hornspyrnu. RB Leipzig skoraði svo það sem liðið hélt að hefði verið sitt þriðja mark í leik liðanna í gær eftir skemmtilega útfærslu af hornspyrnu en markið var dæmt af.

Hér er aðeins um að ræða síðustu fjóra leiki Manchester United. Þarna liggur sökin augljóslega að vissu leyti hjá leikmönnum en það er ljóst að lið liðið er ekki nægilega vel skipulagt þegar kemur að föstum leikatriðum.

Ef horft er á hæð leikmanna Man Utd ætti liðið ekki að vera í vandræðum með fyrirgjafir, það er háa bolta inn í vítateig.

Harry Maguire, fyrirliði liðsins og annar þeirra sem leikur venjulega í hjarta varnarinnar, er 1.94 metrar á hæð. Victor Lindelöf, hinn maðurinn í hjarta varnarinnar, er 1.87 á hæð. Bakverðirnir eru ef til vill engir risar en Luke Shaw er 1.85, Alex Telles er 1.81 og Aaron Wan-Bissaka er 1.83 metrar á hæð.

Þessir þrír ættu að vera nægilega hávaxnir til að ráða við eina og eina fyrirgjöf í leik. Catherine Ivill/Getty Images

Markvörðurinn David De Gea er 1.92 metrar á hæð á meðan varamarkvörður liðsins – sem stóð þó í rammanum gegn West Ham og gegn İstanbul Başakşehir ytra – er 1.88.

Minnsti maður liðsins er miðjumaðurinn Fred en hann er aðeins 1.69 á hæð. Með honum á miðjunni er að venju Bruno Fernandes sem er 1.79 og svo mögulega Paul Pogba [1.91], Scott McTominay [1.93] eða Nemanja Matic [1.94]. 

Framlína Man Utd er einnig hávaxinn en Marcus Rashford er 1.80 metrar á hæð á meðan bæði Anthony Martial og Mason Greenwood eru 1.81. Þá er Edinson Cavani 1.84 á hæð.

Það virðist því litlu skipta að hvort leikmenn séu hávaxnir ef skipulagið er ekki í lagi. Hér að neðan má sjá hvernig Man United stillti upp í vörn í upphafi leiks. Liðið stillti upp í 5-2-3 sem gaf Leipzig nóg af plássi á miðjunni.

Hér má sjá upphaf sóknar Leipzig sem endaði með því að boltinn söng í netinu þegar rétt tæplega tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Á mynd vantar Aaron Wan-Bissaka og Victor Lindelöf [varnarmenn Man Utd].Stöð 2 Sport

Þetta undarlega upplegg lagði grunninn að auðveldu marki Leipzig strax á 2. mínútu leiksins þegar vinstri vængbakvörðurinn Angeliño skoraði með góðu skoti eftir fyrirgjöf frá hægri. Myndin hér að ofan er í aðdraganda marksins en boltinn var í netinu tæpum fimm sekúndum síðar.

Í öðru marki Leipzig reyndi Luke Shaw að bregðast við því sem gerðist í fyrra markinu og hjálpa miðjumönnum sínum. Hann fer alveg upp á miðju til að pressa en það býr til holu í varnarlínu Man Utd. Shaw er svo lengi að skila sér til baka sem þýðir að leikmaður RB Leipzig er aleinn á fjærsvæðinu þegar fyrirgjöfin kemur fyrir markið.

Klippa: Fyrstu tvö mörk RB Leipzig

Þetta eru því miður langt frá því að vera einu atvikin eða leikurinn þar sem skipulag lærisveina Ole Gunnar Solskjær er í molum. Afhroðið gegn Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni er annað dæmi og svo má ekki gleyma marki Demba Ba fyrir İstanbul Başakşehir í 2-1 tapi Man United í Tyrklandi.

Örin á myndinni hér á neðan bendir á Demba Ba. Eftir mislukkaða hornspyrnu hjá Man Utd er Demba Ba sá leikmaður vallarins sem er næstur marki gestanna fyrir utan markvörðinn Dean Henderson.

Demba Ba öskrar á boltann, einn og yfirgefinn.The Athletic

Segja má að þetta mark hafi verið upphafið að endinum hjá Man United í Meistaradeildinni. Liðið endaði á að tapa leiknum og þrátt fyrir að vinna Tyrkina sannfærandi á Old Trafford þá fylgdu tvö töp í kjölfarið gegn PSG og Leipzig.

Niðurstaðan því sú að Man Utd er á leiðinni í Evrópudeildina og eins og staðan er í dag er sigur þar ef til vill raunhæfasti möguleiki liðsins á að komast í Meistaradeild Evrópu að ári.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.


Tengdar fréttir

RB Leipzig komst á­fram á kostnað Manchester United

RB Leipzig lagði Manchester United af velli í kvöld og tryggði sér þar með sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Lokatölur 3-2 í vægast sagt kaflaskiptum leik. Man United fer í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar í staðinn.

Bæði lið gengu af velli í París | Myndbönd

Upplausn í París þar sem İstanbul Başakşehir var í heimsókn hjá  Paris Saint-Germain. Bæði lið gengu af velli eftir að fjórði dómari leiksins gerðist sekur um kynþáttafordóma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×