Fótbolti

Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hossam Hassan, þjálfari egypska landsliðsins, var dæmdur í þriggja leikja bann.
Hossam Hassan, þjálfari egypska landsliðsins, var dæmdur í þriggja leikja bann. EPA/CHRISTOPHER NEUNDORF

Egypski miðjumaðurinn Mostafa Ziko hefur verið dæmdur í fimm leikja bann og landsliðsþjálfarinn Hossam Hassan í þriggja leikja bann eftir hegðun þeirra þegar landsliðið féll úr leik á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í sumar.

Þeir tveir eru dæmdir í bann vegna uppnámsins sem varð eftir leikinn gegn Argentínu Lionels Messi, að því er Knattspyrnusamband Egyptalands greinir frá.

Í yfirlýsingunni segir að liðsstjórinn Ibrahim Hassan hafi einnig verið dæmdur í þriggja leikja bann af Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA).

Egyptaland hyggst áfrýja refsingunum en hefur jafnframt óskað eftir skýringum frá FIFA.

Mikil spenna myndaðist eftir lokaflautið í sextán liða úrslitum HM 7. júlí. Egypski hópurinn var æfur út í franska dómarann François Letexier og aðstoðarmenn hans.

Daginn eftir leikinn sendi Egyptaland formlega kvörtun til FIFA vegna frammistöðu dómaranna. Þar var þess krafist að Letexier yrði settur í bann það sem eftir væri mótsins.

Meginatriði kvörtunarinnar var að Argentínumaðurinn Alexis Mac Allister hefði togað Egyptann Hamdi Fathi niður í vítateignum skömmu áður en Enzo Fernández skoraði sigurmark Argentínu, 3-2, í uppbótartíma.

Ziko fékk einnig mark dæmt af. Það hefði komið Egyptalandi í 3-0 í leiknum. Markið var dæmt af vegna brots í aðdragandanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×