Curtis skaut Liver­pool í 16-liða úr­slitin eftir skógar­hlaup Onana

Anton Ingi Leifsson skrifar
Curtis skorar og Onana fylgist með.
Curtis skorar og Onana fylgist með. Paul Ellis/Getty

Liverpool er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 1-0 sigur á Ajax á heimavelli í kvöld.

Staðan var markalaus í hálfleik. Bæði lið fengu sín færi en ekki náðu þau að skora.

Fyrsta og eina mark leiksins kom á 58. mínútu. Neco Williams gaf þá boltann fyrir markið og Andre Onana markvörður Ajax fór í skógarúthlaup og ætlaði að láta boltann fara.

Það endaði þó ekki vel því á fjærstönginni var Curtis Jones sem kom boltanum í autt markið. Onana greip um höfuðið sér, skiljanlega, enda úthlaupið skelfilegt.

Liverpool er þar af leiðandi komið í 16-liða úrslitin. Liðið er með tólf stig á toppi riðilsins, Atalanta er í öðru sætinu með átta, Ajax með sjö og Midtjylland eftir 1-1 jafntefli Atalanta og Midtjylland.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira