Arsenal sótti loks sigur á Old Trafford

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arsenal fagna sigurmarki kvöldsins.
Arsenal fagna sigurmarki kvöldsins. Paul Ellis/Getty Images

Arsenal gerði sér lítið fyrir og lagði Manchester United 1-0 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Markið skoraði Pierre-Emerick Aubameyang úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.

Manchester United stillti upp sama leikkerfi og í 5-0 sigrinum gegn RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Lærisveinar Mikael Arteta sáu við því en Man United gat lítið sem ekki neitt í dag.

Arsenal mikið betri í fyrri hálfleik en staðan þó markalaus í hálfleik.

Um miðbik síðari hálfleiks braut Paul Pogba klaufalega af sér innan vítateigs og dæmdi Mike Dean vítaspyrnu. Aubameyang fór á punktinn og skoraði af öryggi. Var þetta hans fyrsta mark í fimm leikjum.

Staðan orðin 0-1 og reyndust það lokatölur í dag. Var þetta sjötti leikur United á Old Trafford í deildinni án sigurs. Þá var þetta fyrsti sigur Arsenal á Old Trafford í 14 ár eða síðan árið 2006.

Arsenal er komið upp í 8. sæti deildarinnar með 12 stig, aðeins stigi minna en Everton sem er í 2. sætinu. United er hins vegar í 15. sæti með aðeins sjö stig. Þá hefur liðið tapað þremur af fjórum heimaleikjum sínum í deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira