Enski boltinn

Foreldrarnir héldu að hann væri að segja þeim frá því að konan væri ólétt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Conor Coady var ekki nógu góður fyrir Liverpool liðið fyrir sex árum en nú er hann kominn í enska landsliðið.
Conor Coady var ekki nógu góður fyrir Liverpool liðið fyrir sex árum en nú er hann kominn í enska landsliðið. Getty/Sam Bagnall

Conor Coady er á leiðinni til Íslands með enska landsliðinu á föstudaginn og hann var mjög spenntur þegar hann sagði mömmu sinni og pabba fréttirnar.

Conor Coady, miðvörður Úlfanna, hefur unnið sig aftur upp efir að Liverpool lét hann fara fyrir sex árum og landsliðsþjálfarinn Gareth Soutgate er nú búinn að taka hann inn í enska landsliðshópinn sinn.

Conor Coady er nú 27 ára gamall og að fá sitt fyrsta tækifæri með A-landsliðinu. Hann var í unglingalandsliðum Englands frá sextán til tuttugu ára aldri. Coady kom upp hjá Liverpool en yfirgaf félagið árið 2014 þegar hann samdi við Huddersfield í ensku b-deildinni.

Conor Coady kom til Wolverhampton Wanderers árið 2015 og hjálpaði liðinu aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Hann er nú fyrirliði liðsins sem hefur verið að gera flotta hluti í ensku úrvalsdeildinni undanfarnar leiktíðir.

Conor Coady sagði BBC skemmtilega sögu af því þegar hann sagði foreldrum sínum frá því að hann væri kominn í enska landsliðið.

„Ég og konan mín sögðu við foreldra mína: Við höfum fréttir fyrir ykkur,“ sagði Conor Coady.

„Ég hafði tekið utan um konuna mína og mamma og pabbi sögðu: Ó, Amie er ekki ófrísk aftur er það?,“ sagði Conor Coady.

Conor og Amie Coady eiga þrjá stráka saman en það var ekki von á fjölgun í fjölskyldunni.

„Ég sagði: Nei, ég á þegar þrjá stráka,“ sagði Conor Coady og sagði foreldrum gleðifréttirnar. Hann sagðist líka verið skjálfandi eftir símtalið frá landsliðsþjálfaranum. Gareth Southgate hafði verið að reyna að ná í hann og Coady hringdi til baka.

„Þetta var símtal sem ég mun aldrei gleyma svo lengi sem ég lifi,“ sagði Conor Coady.

„Ég hugsa aldrei of langt fram í tímann og einbeiti mér bara að nútíðinni. Ég vil bara halda áfram að spila fótbolta. Ég er í frábæru félagi og ég vissi það að ef ég myndi leggja mikið á mig þá gæti hlutir gerst og ég hafði heppnina með mér,“ sagði Conor Coady.

Coady var fyrirliði enska sautján ára landsliðsins á EM 2010 og hann var líka fyrirliði tuttugu ára landsliðsins á HM 2013. Harry Kane, Eric Dier og John Stones voru allir í þessum liðum og þeir hafa síðan komist í enska landsliðið en ekki Coady.

Þegar Nuno Espirito Santo tók við Úlfunum þá notaði hann Coady í þriggja manna vörn sem er kerfi sem Gareth Southgate notar hjá enska landsliðinu.

„Ég horfi á alla leiki enska landsliðsins svo ég veit vel hversu erfitt er að komast í þetta lið. Þetta hefur verið draumur hjá mér undanfarin tvö ár. Núna þegar ég er kominn í liðið þá vil ég njóta þess og reyna að hjálpa liðinu eins mikið og ég get hvort sem það er á æfingum eða í leikjum,“ sagði Conor Coady.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×