Innlent

John Snorri og Tomaž telja sig svikna af sjerpunum

Atli Ísleifsson skrifar
Hópur Johns Snorra í tjaldi í grunnbúðum K2 í janúar síðastliðinn.
Hópur Johns Snorra í tjaldi í grunnbúðum K2 í janúar síðastliðinn. John Snorri/Facebook

Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson telur sig svikinn af leiðsögumönnum sem áttu að aðstoða hann á leið upp á fjallið K2 nú í byrjun árs. Hann telur þá ekki hafa tekið þátt í verkefninu af heilum hug.

Þetta segir John Snorri í samtali við Morgunblaðið. Leiðangursstjórinn John Snorri og félagi hans, Slóveninn Tomaž Rotar, stefndu að því að verða fyrstu mennirnir til að klífa K2 að vetrarlagi en hætt var við leiðangurinn í byrjun mánaðar

Var þá greint frá því að tveir í hópnum, annar frá Kína og hinn frá Nepal, hafi ekki treyst sér til að halda áfram af persónulegum ástæðum. Nauðsynlegt hefði verið fyrir alla að vera klára í verkefnið, bæði líkamlega og andlega, og því hafi verið ákveðið að hætta við leiðangurinn.

Dvalarleyfið of stutt

John Snorri segir nú að grunur leiki á að allir hafi ekki tekið þátt í leiðangrinum af heilum hug, en alls voru átta manns í hópnum – John Snorri, Tomaž, þrír Nepalir, tveir Kínverjar og einn Pakistani.

Í frétt Morgunblaðsins er vísað í bréf sem Tomaž sendi fjölmiðlum sem fjalli um háfjallamennsku - bref sem birtist í íslenskri þýðingu í blaðinu í morgun - þar sem hann veltir fyrir sér hvernig leiðangursmenn hafi nálgast leiðangurinn.

Dvalarleyfi sjerpanna í Pakistan hafi verið of stutt til að hægt hefði verið að ljúka leiðangrinum, dularfull meiðsli hafi angrað einn þeirra og ljóst var að þær matarbirgðir sem lagt var af stað með myndu ekki duga. Nauðsynlegt sé að fá skýringar enda hafi kostnaður Tomaz og John Snorra vegna leiðangursins numið tólf milljónum króna.

Vel þekkt

K2 er að finna á landamærum Kína og Pakistan og er annað hæsta fjall á eftir Everest í Nepal. K2 er 8.611 metrar á hæð og þykir eitt erfiðasta fjall heims til að klífa.

John Snorri segir þetta því miður vera þekkt hjá sjerpunum og það sé stór ástæða fyrir því að þeir eigi í vandræðum með að kaupa tryggingar í leiðangra. „Þeir fara með fólk upp í búðir þrjú og segja svo að ekki sé hægt að fara hærra af ýmiss konar ástæðum,“ hefur blaðið eftir John Snorra sem kveðst ætla að gera aðra tilraun til að komast á tindinn að vetrarlagi að ári.


Tengdar fréttir

John Snorri lagður af stað úr grunnbúðum K2

Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson og gönguhópur hans héldu í nótt úr grunnbúðum fjallsins K2. John Snorri stefnir á að verða fyrsti maðurinn til að klífa tind fjallsins að vetrarlagi.

John Snorri kominn í grunnbúðir K2

Eftir níu daga á Baltoro-jöklinum er hópur Johns Snorra kominn í grunnbúðirnar. Næst þarf hópurinn að undirbúa leiðina upp í efri grunnbúðir fjallsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×