Enski boltinn

Smalling efstur á lista Newcastle

Ísak Hallmundarson skrifar
Smalling í leik með Roma.
Smalling í leik með Roma. getty/Jonathan Moscrop

Varnarmaðurinn Chris Smalling, leikmaður Manchester United, er efstur á óskalista Steve Bruce þjálfara Newcastle í þessum félagsskiptaglugga. Smalling var á láni hjá Roma á síðasta tímabili þar sem hann lék við góðan orðstír.

Þessi 30 ára gamli leikmaður á tvö ár eftir af samningi sínum hjá Manchester United en er frjálst að yfirgefa félagið í sumar.

Bruce er sagður vilja versla inn breska leikmenn í sumar og passar fyrrverandi enski landsliðsmaðurinn Smalling fullkomnlega inn í þá mynd. Það er hinsvegar spurning hvort Newcastle eigi efni á leikmanninum en ekkert varð af kaupum Sádi-Araba á félaginu í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×