Enski boltinn

Klopp hefur á­hyggjur af sam­böndunum hjá þeim sem horfðu á alla leikina á annan í jólum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Klopp var hress og kátur á blaðamannafundi í gær.
Klopp var hress og kátur á blaðamannafundi í gær. vísir/epa

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er ekki sáttur með dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar yfir jólahátíðirnar og heldur áfram að gagnrýna leikjafyrirkomulagið.

Liverpool tapaði ekki stigi yfir jólahátíðina en liðin mætir svo grönnunum í Everton á morgun er liðin mætast í enska bikarnum.

Klopp var spurður út í álagið á blaðamannafundi gærdagsins.

„Eins og alltaf í lífinu þá snýst þetta um gæðin en ekki magnið,“ sagði Klopp á blaðamannafundi fyrir grannslaginn um helgina.

„Ef þú hittir góðan vin tvisvar á ári þá er þetta besti tími lífsins. Ef þú sérð hann á hverjum þá segiru eftir fimm daga: Hvaða rugl er þetta?“







„Það sem við erum að gera núna er að við köstum öllum fótbolta að fólkinu yfir jólahátíðirnar.“

„Hversu margir leikir voru á öðrum degi jóla? Það voru líklega menn sem horfðu á alla þessa leiki í beinni.“

„Ég held að það sé ekki gott fyrir samböndin hjá þeim í hreinskilni sagt. Þetta væri ekki gott fyrir mig því ég horfi nú þegar á of mikið af fótbolta,“ sagði Þjóðverjinn léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×