Bayern niðurlægði Chelsea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Robert Lewandowski fagnar í kvöld.
Robert Lewandowski fagnar í kvöld. vísir/getty

Bayern München er örugglega komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 4-1 sigur á Chelsea í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitunum. Samanlagt 7-1.

Eftir tíu mínútur fengu heimamenn í Bayern vítaspyrnu. Úr henni skoraði Pólverjinn Robert Lewandowski og stundarfjórðungi síðar tvöfaldaði Ivan Perisic forystuna.

Callum Hudson-Odoi virtist vera minnka muninn á 28. mínútu en hann var dæmdur rangstæður. Tammy Abraham náði þó að minnka muninn á síðustu mínútu fyrri hálfleiks.

Corentin Tolisso kom Bayern í 3-1 á 76. mínútu og átta mínútum síðar skoraði Lewandowski annað mark sitt og fjórða mark Bæjara. Lokatölur 4-1 og samanlagt 7-1 sigur Bæjara. Skellur fyrir þá ensku.

Bayern München mætir Barcelona í átta liða úrslitunum sem hefjast í Portúgal í næstu viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira