Meistarar Liverpool luku leiktíðinni með sigri

Virgil van Dijk skorar hér með skalla gegn Newcastle.
Virgil van Dijk skorar hér með skalla gegn Newcastle. VÍSIR/GETTY

Englandsmeistarar Liverpool luku tímabili sínu á því að vinna Newcastle á útivelli í dag, 3-1. 

Liverpool endaði því með 99 stig á meistaraárinu, 18 stigum á undan Manchester City sem vann fallið lið Norwich 5-0 í dag. 

Newcastle komst reyndar yfir á 1. mínútu í dag, með marki Dwight Gayle, en Virgil van Dijk jafnaði metin með skalla. Divock Origi og Sadio Mané skoruðu svo í seinni hálfleik og tryggðu Liverpool sigurinn.

Newcastle endaði í 13. sæti með 44 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira