Englandsmeistarar Liverpool luku tímabili sínu á því að vinna Newcastle á útivelli í dag, 3-1.
Liverpool endaði því með 99 stig á meistaraárinu, 18 stigum á undan Manchester City sem vann fallið lið Norwich 5-0 í dag.
Newcastle komst reyndar yfir á 1. mínútu í dag, með marki Dwight Gayle, en Virgil van Dijk jafnaði metin með skalla. Divock Origi og Sadio Mané skoruðu svo í seinni hálfleik og tryggðu Liverpool sigurinn.
Newcastle endaði í 13. sæti með 44 stig.