Gylfi Þór kom inn af bekknum og Everton vann

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gylfi Sigurðsson er í byrjunarliðinu í dag.
Gylfi Sigurðsson er í byrjunarliðinu í dag. vísir/getty

Gylfi Þór Sigurðsson var á bekknum annan leikinn í röð hjá Everton er liðið mætti Norwich City á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Eftir að staðan var markalaus í hálfleik var Gylfi Þór sendur inn á til að bjarga málunum.

Eftir aðeins tíu mínútur í síðari hálfleik skoraði Michael Keane eina mark leiksins eftir fast leikatriði Lucas Digne.

Staðan orðin 1-0 og fleiri urðu mörkin ekki á Carrow Road og Everton fór með öll þrjú stigin heim í Bítlaborgina.

Everton er nú komið með 41 stig í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Norwich City situr sem fastast á botni deildarinnar með aðeins 21 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira