Íslenski boltinn

Rasmus með höfuðverk í sólarhring eftir leikinn við KR: „Vissi alveg að það væru ekki tveir boltar“

Sindri Sverrisson skrifar
Rasmus Christiansen og Tobias Thomsen skullu illa saman í leiknum á laugardag.
Rasmus Christiansen og Tobias Thomsen skullu illa saman í leiknum á laugardag. MYND/STÖÐ 2 SPORT

„Mér líður betur í dag en í gær. Ég var með hausverk út kvöldið, og allan daginn í gær,“ segir Rasmus Christiansen, miðvörður Vals, sem varð að fara af velli vegna höfuðmeiðsla í leiknum við KR þegar keppni í Pepsi Max-deildinni hófst á laugardaginn.

Rasmus skall með höfuðið saman við Tobias Thomsen í skallaeinvígi í fyrri hálfleik, en hélt áfram leik um stund áður en hann bað um skiptingu.

„Þegar þetta gerðist í leiknum þá varð sjónin svolítið trufluð. Maður gæti sagt að ég hafi séð tvöfalt. Ég vissi alveg að það væru ekki tveir boltar inni á vellinum en ég sá hlutina ekki alveg skýrt. Svona var þetta í 10-15 mínútur og varð til þess að ég settist niður, og svo kom höfuðverkurinn. Sjónin er allt í lagi núna og ég er með mikinn minni hausverk. Ég held því að þetta hafi ekki verið neitt meira en högg,“ sagði Rasmus við Vísi í morgun. Höggið sem hann fékk má sjá hér að neðan.

Klippa: Rasmus fékk höfuðhögg gegn KR

Hann stefnir á að taka þátt í næstu æfingu Vals, á morgun, og mun æfa einn í dag til að meta ástandið betur.

„Ég fer kannski ekki beint í einhverjar skallaæfingar strax,“ sagði Rasmus og hló. „Sjúkraþjálfarinn okkar er búinn að fara yfir þetta með mér, gera einhver próf, og við fyrstu skoðun virðist þetta „bara“ vera kúla. Það sé kúlan sem valdi verknum, og þetta sé ekki beint heilahristingur. Ég fann enn mikinn verk í gær en núna finn ég bara verk ef ég ýti á kúluna.“

Rasmus Christiansen varð Íslandsmeistari með Val 2018 en lék svo sem lánsmaður hjá Fjölni í fyrra og átti stóran þátt í að koma liðinu upp í efstu deild.VÍSIR/BÁRA

Valsmenn byrja tímabilið án Andra Adolphssonar sem hefur verið frá keppni síðan í lok febrúar eftir höfuðhögg sem hann fékk í leik við ÍBV. Í samtali við Fótbolta.net á dögunum kvaðst Andri vonast til að geta tekið þátt í seinni hluta tímabilsins. Alvarleiki meiðsla hans eru Rasmusi og öðrum víti til varnaðar, þó að Rasmus hafi reynt að harka af sér í korter eftir höfuðhöggið:

„Ég var ekki beint að spá í að þetta væri erfitt, maður er svo einbeittur á leikinn, en það var alltaf eitthvað að trufla. Á endanum fannst mér að ég væri ekki að gera mikið gagn með því að vera inni á. Í ljósi þess að Andri Adolphsson er að glíma við höfuðmeiðsli núna, ekki það að maður hugsi beint um það í hita leiksins, þá er maður líka meðvitaður um hvað þetta er hættulegt.“

Klippa: Sigurmark KR á Hlíðarenda

Rasmus og Orri Sigurður Ómarsson mynduðu miðvarðapar Vals gegn KR, í leiknum sem KR vann 1-0, en Eiður Aron Sigurbjörnsson varð að gera sér sæti á varamannabekknum. Eiður leysti svo Rasmus af hólmi og samkeppnin er augljóslega mikil um sæti í liðinu:

„Það er auðvitað alltaf skemmtilegra að byrja fótboltaleiki en ekki, en ég geri mér alveg grein fyrir því að við erum með hörkulið bæði í varnarstöðunum og sóknarstöðunum. Maður tekur þá leiki sem maður fær, en svo er alveg líklegt að Heimir og Túfa [þjálfarar Vals] breyti til yfir leiktíðina, til að nýta þessa góðu breidd sem við erum með. Ég veit því ekki hvort ég spila alla leiki en það var gaman að byrja fyrsta leik.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×