Breiða­blik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Sveinn Margeir Hauksson og Aron Bjarnason í baráttunni í kvöld.
Sveinn Margeir Hauksson og Aron Bjarnason í baráttunni í kvöld. vísir/Guðmundur

Breiðablik og Víkingur sýndu að enn er grunnt á því góða á milli liðanna þegar þau mættust í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í kvöld. Blikar komust yfir en Íslandsmeistararnir unnu á endanum 2-1 í leik þar sem rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft.

Breiðablik missti Anton Loga Lúðvíksson og þjálfarann Ólaf Inga Skúlason af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik en var þó 1-0 yfir í hálfleik með marki frá Jónatani Guðna Arnarssyni.

Daníel Hafsteinsson fær faðmlag frá fyrirliðanum. Hann skoraði en fékk rautt spjald undir lokin.vísir/Guðmundur

Í seinni hálfleiknum jafnaði Daníel Hafsteinsson metin og Sveinn Margeir Hauksson skoraði frábært sigurmark úr aukaspyrnu.

Undir lokin voru lætin mikil og fengu bæði Ásgeir Helgi Orrason og Daníel Hafsteinsson að líta rauða spjaldið áður en yfir lauk en það voru Víkingar sem fögnuðu sigri, 2-1, og undirstrikuðu enn að þeir eru með besta lið landsins í ár.

Sveinn Margeir Hauksson og Aron Bjarnason í baráttunni í kvöld.vísir/Guðmundur

Uppgjörið og viðtöl koma hér inn innan skamms...

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira