Telur hættulegt að hverfa frá verðbólgumarkmiði 27. febrúar 2008 02:30 Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir hugmyndir um að hverfa frá verðbólgumarkmiði hættulegar á þessum tímapunkti. MYND/Heiða
Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir að skilaboð Illuga Gunnarssonar og Bjarna Benediktssonar, þingmanna Sjálfstæðisflokksins, í grein í Morgunblaðinu í gær skjóti skökku við. „Þá ekki síst í ljósi upplýsinga um vaxandi verðbólgu, að senda þá út skilaboð um að Seðlabankinn hverfi frá verðbólgumarkmiðinu. Þetta eru mjög hættulegar hugmyndir." Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, varpa fram þeirri spurningu í gær hvort í ljósi þeirrar áhættu sem steðjar að fjármálakerfinu í landinu sé ekki nauðsynlegt að ræða hvort Seðlabankinn eigi að bregðast við og breyta áherslum sínum. Bankinn víki tímabundið frá verðbólgumarkmiði sínu því mjög brýnt sé að stýrivextir lækki. Þingmennirnir vara við fjármálakreppu þegar bankarnir þurfa að endurfjármagna sig á komandi misserum. Þeir telja að við núverandi aðstæður sé betra að taka áhættuna af verðbólgu en af kreppu í fjármálakerfinu. Núverandi löggjöf veitir að þeirra mati svigrúm til aðgerða sem taka meira tillit til slíks stöðugleika, þótt það sé á kostnað verðbólgu og viðleitni bankans til að nálgast lögbundið verðbólgumarkmið. Illugi Gunnarsson segir að þeir Bjarni hafi ekki tölu í huga þegar rætt er um lækkun stýrivaxta enda taki þeir ekki afstöðu til þess hvort stýrivextir eigi að lækka. „Það sem við erum að segja er að áhersla bankans á fyrst og fremst að vera á fjármálastöðugleikann. Ég er þeirrar skoðunar að því fyrr sem við komumst í að lækka vexti því betra, því ekkert hagkerfi getur búið við þennan stórfellda vaxtamun til lengdar." Arnór segir að verið sé að ræða um fjármögnunarvanda bankakerfisins. „Hann leysist ekki með fimm punkta lækkun eða eins prósents lækkun. Það þarf miklu meira til ef leysa á þann vanda með vaxtalækkun." Arnór telur að lækka þurfi stýrivexti úr 13,75 prósentum niður í allt að sjö prósent. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir jákvætt að fá umræðu um það hvernig Seðlabankinn getur komið inn í að lækka vexti. „Vaxtastefna Seðlabankans er í sjálfheldu. Þetta er orðið þannig að vextir bankans eru okkur stórkostlegur fjötur um fót. Vaxtahækkanir hafa ekki unnið gegn verðbólgu og vaxtalækkanir munu held ég ekki magna hana neitt heldur. Gengið sveiflast þrátt fyrir vaxtahækkanir." Vilhjálmur segir að um trúverðugleikavanda sé að ræða hjá Seðlabankanum. „Þegar vel gengur þá talar bankinn um þenslu og verðbólgu þess vegna. Þegar illa gengur talar bankinn um gengisfellingu, launaskrið og verðbólgu af þeim ástæðum. Það er sama hvernig gengur í efnahagslífinu. Bankinn sér aldrei ástæðu til að lækka vexti."
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sjá meira