Sport

Kona lætur lífið í hnefaleikum

Bandarísk hnefaleikakona lést á sunnudaginn, eftir að hafa verið slegin niður í hnefaleikabardaga í Denver. Konan hét Becky Zerlentes og var að snúa til keppni á ný eftir nokkuð hlé, en hún var fyrrverandi meistari í hnefaleikum. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem kona lætur lífið í hnefaleikakeppni, svo vitað sé. Farið var með konuna á sjúkrahús eftir að hún komst ekki til meðvitundar eftir að hafa verið slegin niður, en hún var úrskurðuð látin á spítalanum. Hnefaleikaíþróttin hefur notið mikillar vinsældar meðal kvenna í Bandaríkjunum á undanförnum árum, ekki síst með tilkomu Laila Ali, dóttur Muhamed Ali, sem fór mikinn í sportinu á sínum tíma og kom því á kortið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×