Innlent

Ráða hverjum hleypt inn í landið

"Við fylgjumst með þegar svona atvik eiga sér stað og berist kvartanir tökum við þær alltaf alvarlega," segir Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Arna Ösp Magnúsardóttir hefur lýst því yfir að hún hyggist leita til utanríkisráðuneytisins en hún var handtekin af ísraelsku landamæralögreglunni við komu til Tel Aviv á mánudag er hún var á leið til Palestínu. Örnu var í kjölfar tíu klukkustunda yfirheyrslu vísað úr landi og telur hún réttindi sín ekki hafa verið virt. Utanríkisráðuneytið hefur ekki haft samband við ísraelsk yfirvöld vegna máls Örnu Aspar. "Ef athugasemd kemur frá íslenskum ríkisborgara sem telur á sér brotið skoðum við málið," segir Illugi. "Þá höfum við samband við yfirvöld ef við metum stöðuna þannig að ástæða sé til." Illugi bætir við að Ísrael, eins og önnur lönd, ráði hverjum hleypt er inn í landið. Þá megi ekki gleyma því að mikið spennuástand ríki í landinu. "
Fleiri fréttir

Sjá meira


×