Spennan í algleymingi á Akureyri 19. apríl 2013 14:15 Sigurvegararnir í fyrra.
Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2013 verður haldin þann 20. apríl í Höllinni á Akureyri og úrslitunum sjónvarpað beint á RÚV klukkan 19.40. Undankeppnin fer fram kvöldið áður, föstudagskvöldið 19. apríl, þar sem þrjátíu skólar keppa um að komast í úrslit. Dómnefndin, sem er skipuð Páli Óskari Hjálmtýssyni, Ragnhildi Gísladóttur og Agnesi Björt Andradóttur, velur ellefu lög sem komast áfram í úrslit en tólfta lagið er valið af almenningi með símakosningu. Á úrslitakvöldinu er það alfarið í höndum dómara að ákvarða hvaða skóli fer með sigur af hólmi. Er þetta breytt fyrirkomulag frá því í fyrra þegar undankeppnin fór fram á mbl.is og dómarar völdu sex lög og sex lög voru valin með símakosningu. Á úrslitakvöldinu á síðasta ári gilti val dómnefndar á sigurvegara jafnt til móts við símakosningu. Í fyrra var það Tækniskólinn sem bar sigur úr býtum þegar heill karlakór flutti lagið Stolt siglir fleyið mitt eftir Gylfa Ægisson og verður spennandi að sjá hvaða skóli hreppir hnossið að þessu sinni. Sigurvegari keppninnar mun feta í fótspor landsþekktra Íslendinga eins og Margrétar Eirar Hjartardóttur, Emilíönu Torrini, Sverris Bergmann og Eyþórs Inga Gunnlaugssonar sem hafa borið sigur úr býtum í keppninni í gegnum tíðina. Enn fremur hafa margar af okkar skærustu stjörnum stigið sín fyrstu skref á sviði keppninnar, þar á meðal fyrrnefndur Páll Óskar Hjálmtýsson, Hera Björk Þórhallsdóttir og Regína Ósk. Kynnar á úrslitakvöldinu í Höllinni laugardagskvöldið 20. apríl er Hraðfréttatvíeykið óborganlega, Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Hljómsveitarstjóri húsbandsins í ár er Vignir Snær Vigfússon en hljómsveitina skipa Pálmi Sigurhjartarson á hljómborð, Óskar Þormarsson á trommur, Birgir Kárason á bassa og Gunnar Þór Jónsson á gítar. Stjórn upptöku annast Guðni Halldórsson en framleiðendur eru Anna Vigdís Gísladóttir og Jón Haukur Jensson hjá Sagafilm.
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira