Abbas vill að Palestínumenn annist landamæravörslu 26. janúar 2008 13:15
Abbas forseti palestínsku heimastjórnarinnar ætlar að leggja til við Ísraela að sveitir hans yfirtaki stjórn landamæra Gaza-svæðisins og Egyptalands. Abbas hittir Olmert forsætisráðherra á morgun. Íbúar Gaza fóru þúsundir saman yfir til Egyptalands á ný í morgun. Í morgun komust Palestínumenn óáreittir frá Gaza yfir til Egyptalands á ný eftir að litlu munaði að til átaka kæmi í gærkvöldi. Þá reyndu egypskir hermenn að loka landamærunum með gaddavírsgirðingu. En Palestínumenn urðu æfir og köstuðu grjóti að hermönnum, sem svöruðu með því að sprauta vatni úr háþrýstibyssum á fólkið. Einn hermaður fékk skot í fót. Eftir það hörfuðu egypsku hermennirnir og í morgun var engan þeirra að sjá við landamærin. Egyptar segjast ekki munu líða það til lengdar að landamærin verði opin á þennan hátt milli Egyptalands og Gaza, sem er í raun hernámssvæði Ísraela þó að þeir hafi dregið herafla sinn af svæðinu. Á morgun ætla Abbas forseti heimastjórnar Palestínumanna og Olmert forsætisráðherra Ísraels að hittast á fundi, sem er liður í friðarferlinu sem nú er hafið á ný eftir sjö ára hlé. Abbas segist munu leggja til að sveitir palestínsku heimastjórnarinnar gæti landamæranna. Markmið viðræðnanna er að ná friðarsamningi fyrir árslok - en uppákoma undanfarinna daga við Gaza svæðið flækir málið, og getur orðið til að tefja fyrir lausn þessarar sex áratuga löngu deilu Ísraela og Palestínumanna.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fleiri fréttir Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Sjá meira