Menning

Bestu myndir ársins 2019

Sylvía Hall skrifar
Frá sýningunni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Frá sýningunni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Vísir/Arnar

Í dag klukkan 14 voru afhent verðlaun í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir bestu myndir ársins 2019. Veitt voru verðlaun í sjö flokkum auk bestu myndar ársins.

Verðlaunahafarnir í dag.Vísir/Arnar

Mynd ársins 2019 tók Golli / Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari Iceland Review og er það mynd frá vorferð Jöklarannsóknarfélags Íslands á vatnajökul. 

„Áhrifarík og táknræn mynd fyrir loftslagsbreytingar af manna völdum. Myndin sýnir hversu smár maðurinn er í samanburði við náttúruna og síbreytilegan jökulinn frá áhugaverðu sjónarhorni,“ segir í umsögn dómnefndar.

Vorferð Jöklarannsóknarfélags Íslands á Vatnajökul, mynd ársins 2019.Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, átti bestu mynd í fréttaflokki. Á myndinni sjást nemendur mótmæla aðgerðaleysi í loftslagsmálum á hinum vikulegu loftslagsverkföllum sem fram fóru síðasta vetur. 

„Myndin fangar það málefni sem hefur einna mest verið í umræðunni á Íslandi og heiminum öllum. Skilaboðin koma skýrt fram í myndinni og sýna að ungt fólk lítur til framtíðar,“ segir í umsögn dómnefndar. 

Fréttamynd ársins.Sigtryggur Ari Jóhannsson/Fréttablaðið

Kristinn Magnússon átti íþróttaljósmynd ársins en á myndinni sést Anton Sveinn McKee stinga sér til sunds er hann keppti í 50 metra bringusundi. Hann vann til gullverðlauna þegar hann synti á 28,68 sekúndum.

„Mynd sem fangar kjarna íþróttaljósmyndunar. Góð myndbygging á hárréttu augnabliki,“ segir í umsögn dómnefndar.

Íþróttamynd ársins.Kristinn Magnússon

Mynd Aldísar Pálsdóttur var valin tímaritamynd ársins. 

Í umsögn dómnefndar segir að myndin sé vel útfærð tískumynd með fallegri myndlýsingu og góðri myndbyggingu. Módelið sé fangað á grafískan hátt.

Sundhöllin - Er allt sem sýnist? Hvað er fullkomið?Aldís Pálsdóttir

Umhverfismynd ársins var mynd Eggerts Jóhannessonar frá Ískönnunarleiðangri Landhelgisgæslunnar. 

„Tignarlegur ísjaki sem flýtur um í þokunni gefur okkur tilfinningu fyrir því sem er að tapast en einnig fyrir styrk og mikilfengleika náttúrunnar,“ segir í umsögn dómnefndar. 

Umhverfsmynd ársins.Eggert Jóhannesson

Heiða Helgadóttir fékk verðlaun fyrir mynd í flokknum Daglegt líf mynd ársins.

„Tímalaus mynd sem sýnir kuldalegan veruleika íslenskra smábátasjómanna,“ segir í umsögn dómnefndar en á myndinni sést Ragnar Emilsson, skipstjóri á Mána II, sem hefur stundað sjómennsku í 35 ár.

„Þetta lá alltaf fyrir mér, ég var búin að ákveða að gerast sjómaður þegar ég var 5 ára. Þetta voru idolin, maður var alltaf að fylgjast með þeim á höfninni. Ég er búin að prófa að gera annað, það gekk ekki upp. Þetta togar í mann. Mér líður bara vel á sjónum, það er eitthvað þetta er óútskýrt, þegar maður er í fríi þá er maður út á bryggju að spá og spekulera og skoða bátana.”Heiða Helgadóttir

Þá fékk Heiða Helgadóttir einnig verðlaun fyrir portrettmynd ársins af Sif Baldursdóttur.

Að mati dómnefndar var myndin táknræn og marglaga portrett mynd, vel innrömmuð sem leyfir áhorfandanum að upplifa og túlka sjálfur.

Sif Baldursdóttir um hamingjuna: „Veit einhver hvað þessi blessaða hamingja í alvörunni er? Er hún ástand eða tilfinning, eða er hún óljóst hugtak sem við eltumst við án þess einu sinni skilja hvað við erum á höttunum eftir. Kvíði og þunglyndi eru gráir fylgifiskar þess að vera manneskja og að lifa í samfélagi sem uppfyllir ekki þær þarfir sem við höfum varðandi nánd nema að vissu eða litlu leyti. Það sem ég átta mig betur og betur á með hverju árinu er að geðheilsan er svo mikilvæg að hún er eiginlega allt.“Heiða Helgadóttir

Golli fékk verðlaun fyrir myndaseríu ársins frá vorferð Jöklarannsóknarfélags Íslands á Vatnajökul. 

Myndaserían þótti vel uppbyggð og sameinaði fallegar myndir og heildstæða frásögn sem á erindi við alla. Myndaröðin sýni menn í tengslum við náttúruna frá ýmsum sjónarhornum.

Myndasería ársins.Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Sýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur frá 11. Maí til 1. júní. Fjöldi gesta í sýningarsal hverju sinni takmarkast við 40 manns og virða þarf 2ja metra regluna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×