Vill meiri stuðning að heiman 13. október 2005 15:20 "
Í gegnum tíðina hefur það reynst mér þrautin þyngri að verða mér úti um styrktaraðila og oftast hef ég komið að lokuðum dyrum hjá íslenskum fyrirtækjum," segir Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari, en hún þarf líkt og flest annað íslenskt afreksfólk að leita dyrum og dyngjum að styrkjum og fjárframlögum til að halda áfram metnaðarfullu starfi sínu. Nýliðið ár var eitt hið besta til þessa hjá Þóreyju Eddu en hún setti meðal annars Norðurlandamet í stangarstökki og er efst Íslendinga á afrekaskrá Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins. Auk þess varð hún Íslandsmeistari með liði FH í frjálsum íþróttum og náði fimmta sæti í stangarstökkskeppninni á Ólympíuleikunum í Aþenu. Þrátt fyrir þennan góða árangur hrökkva styrkir til hennar vart til og segir Þórey að flest ár séu barátta við að halda sig við núllið. "Ég hef fengið styrk frá Íþróttasambandi Íslands og var á samningi við VISA síðastliðið ár og þeir styrkir dugðu mér til að lifa og sinna mínum æfingum með góðu móti. Nú er samningurinn við Visa runninn út en þetta ár fæ ég styrk í staðinn frá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar og saman eru þessir styrkir algjör grundvöllur fyrir því að ég geti stundað mína íþrótt." Alltaf er þó hægt að gera betur og segir Þórey að erfitt geti verið að horfa upp á kollega sína frá Þýskalandi eða öðrum Norðurlöndum enda sé mikill munur á þeim fjármunum sem það fólk hefur aðgang að og þeim sem Þórey getur notað. "Þó er ekki hægt að vanmeta þá styrki sem eru af öðrum toga en beinharðir peningar en það virðist frekar að fyrirtæki séu reiðubúin að styrkja afreksfólk með þeim hætti en með beinhörðum peningum og það met ég mikils." Hér heima er reglulega reynt að sækja styrki fyrir hennar hönd með litlum árangri en Þórey sjálf vill gjarnan sjá viðhorfsbreytingu hjá forráðamönnum íslenskra fyrirtækja. "Ég vil gjarnan sjá fyrirtæki heima taka alfarið að sér stuðning við einn efnilegan einstakling eins og erlend fyrirtæki gera víða. Þannig tryggir íþróttamaðurinn sér stuðning og fyrirtækið fær það til baka þegar og ef viðkomandi kemst langt í sinni íþrótt því almennt er íþróttafólk áberandi í fjölmiðlum, yfirleitt góðar fyrirmyndir og auglýsingagildið er ótvírætt."
Íþróttir Mest lesið Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Íslenski boltinn Fyrsta félagið með tvö fórnarlömb skotárása í liðinu Sport Græddu meira en milljarð á kokteilum á US Open Sport Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Enski boltinn Rio setti nýtt Liverpool met Enski boltinn Óskar Hrafn: Stundum hata ég fótbolta Íslenski boltinn Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Enski boltinn Jökull: Förum ekki hærra með svona frammistöðu Íslenski boltinn Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks Enski boltinn Selja „Isak er rotta“ treyjur fyrir utan völlinn og eldspýtur fylgja með Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta félagið með tvö fórnarlömb skotárása í liðinu Græddu meira en milljarð á kokteilum á US Open Sjáðu gullstrákana í Vestra fagna: „Vorum bara miklu stærra lið“ Van Dijk um Rio: Draumabyrjun en hann verður að vera auðmjúkur Rio setti nýtt Liverpool met Óskar Hrafn: Stundum hata ég fótbolta Jökull: Förum ekki hærra með svona frammistöðu Inter byrjar tímabilið á stórsigri Örvar: Tökum þessa þrjá punkta og förum brosandi heim Sextán ára strákur tryggði Liverpool öll stigin Uppgjör: KR-Stjarnan 1-2 | Örvar kom Stjörnunni inn í titilbaráttuna Ísak Andri lagði upp mark í langþráðum sigri Selja „Isak er rotta“ treyjur fyrir utan völlinn og eldspýtur fylgja með Ólympíumeistarinn hitti ekki dýnuna og missir af HM Slot hefur enga samúð með Eddie Howe vegna Isaks Markvörður ÍBV kominn með fimm gul spjöld í sumar Heljarmennið sem fagnaði eins og Schwarzenegger Sjáðu dramatíkina í Krikanum og mörkin fyrir norðan „Við eigum bestu stuðningsmenn á landinu“ Foreldrum Bellinghams bannað að koma í klefann hjá Dortmund Fóru af hjörunum eftir að ljósmyndari fór inn á „Óskar seldi mér bara hugmyndina sína“ „Getur ekki látið 140 milljóna punda mann í varaliðið“ Stjörnurnar samglöddust Fleetwood sem vann loks í 164. tilraun Fer í aðgerð á föstudag og frá í sex til átta mánuði „Það urðu smá árekstrar en heilt yfir var þetta ótrúlega vel skipulagt“ Isak utan vallar en þó í forgrunni Saka frá í mánuð og missir af Liverpool Botna lítið í Amorim: „Hann er ein taugahrúga“ Rooney feginn að Dowman tók ekki vítið Sjá meira