Albert Maysles heiðursgestur á Skjaldborg 3. apríl 2008 16:48
Hinn goðsagnakenndi leikstjóri Albert Maysles verður heiðursgestur Heimildarmyndarhátíðarinnar Skjaldborgar þetta árið. Maysles er einn af kunnustu heimildarmyndagerðarmönnum samtímans og hefur ásamt bróður sínum og helsta samstarfsmanni David Maysles haft gríðarleg áhrif í faginu. „Það gefur hátíðinni mikið vægi að fá svona frægan kall í þessum bransa," segir Gunnar Theodór Eggertsson kynningarfulltrúi hátíðarinnar. Hann segir Maysles brautryðjanda „cinema verite" heimildamyndagerðar en í henni nálgast kvikmyndagerðarmaðurinn viðfangsefni sitt án nokkurs handrits og hefur af því sem allra minnst afskipti - stundum kallað fluga-á-vegg kvikmyndagerð. Fyrir utan frumlega nálgun við viðfangsefni sín urðu Maysles-bræður fljótt þekktir fyrir óvenjulegar svipmyndir af mörgum frægustu einstaklingum 20. aldarinnar. Má þar nefna Marlon Brando, Truman Capote, Orson Welles, Bítlana og Rolling Stones. Þrjár þekktustu heimildamyndir Maysles-bræðra verða sýndar á Skjaldborg: Salesman (1968), Gimme Shelter (1970) og Grey Gardens (1976). Að auki verður nýjasta mynd Alberts, The Gates (2007), sýnd á hátíðinni. Albert Maysles verður sjálfur viðstaddur sýningu á einni af myndum sínum auk þess að sitja fyrir svörum og segja ítarlega frá glæsilegum ferli. Skjaldborgarhátíðin fer fram í annað sinn á Patreksfirði dagana 9-12 maí Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildamyndir er hátíðinni ætlað að vera vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til að hittast og skiptast á skoðunum. Í lok hátíðarinnar verður besta heimildamyndin á Skjaldborg 2008 valin af áhorfendum. Fjöldi mynda hefur þegar verið staðfestur, og má þar nefna Kjötborg eftir Helgu Rakel og Huldu Rós beinir sjónum að lífi og störfum kaupmannsins á horninu og samskiptum hans við viðskiptavinina. Making of La Traviata eftir Anup Garung fylgir eftir uppsetningu óperunnar La Traviata í Skagafirði. Gufan - Ber er kverúlant að baki eftir Ara Eldjárn bregður óvæntu ljósi á samfélagið í heitu pottunum. The Great Northern Documentary eftir Heimi Sverrisson segir frá hljómsveitinni Mínus í L.A. við upptökur á plötunni The Great Northern Whale Kill. Bara 5 mínútur í viðbót eftir Steindór Gunnar Steindórsson fjallar um tölvuleikjafíkn. Chequered flags of our fathers eftir Árna Magnússon fjallar um fegðgana Andy og Albert Carter og háleita drauma föðurins til að koma 4 ára syni sínum í Formúlu 1. Einnig verður sýnt úr fjölmörgum íslenskum heimildamyndum sem enn eru í vinnslu og sem dæmi má nefna Sólskinsdrengur eftir Friðrik Þór Friðriksson. Þeim sem hafa áhuga á að fá heimildamynd tekna til sýninga á Skjaldborg 2008 er bent á að hafa hraðar hendur því dagskrá hátíðarinnar verður læst á næstu dögum. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar. www.skjaldborgfilmfest.com
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Hera Björk mun kynna stigin Lífið Fleiri fréttir Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Sjá meira