Sameiningin skerðir þjónustu og valfrelsi 4. september 2006 11:49 MYND/Haraldur Jónasson
Varaformaður Læknafélags Íslands segir að sameining Borgarspítalans og Landspítalans hafi verið misráðin og að starfsmannastefna sameinaðs háskólasjúkrahúss skerði valfrelsi lækna og þjónustu við sjúklinga. Í ályktun Læknafélags Íslands frá landsfundi þess fyrir helgi kemur fram að eina hagræðingin sem hingað til hafi komið fram af sameiningunni sé fækkun sjúkrarúma og allt of mikil fækkun starfsfólks sem leiði af sér lélegri þjónustu við sjúklinga og minni tíma til vísindastarfa. Sigurður E. Sigurðarson, varaformaður Læknafélags Íslands, segir það tæpast ávinning ef hagræðingin bitni á sjúklingum í stað þess að þjóna þeim. Hann segir að yfirstjórn sjúkrahússins segi enn að þetta taki allt sinn tíma og að ávinningurinn komi ekki í ljós tafarlaust. Hins vegar segir hann að ófriðurinn hafi verið nánast viðvarandi síðan sjúkrahúsin voru sameinuð, nú síðast með dómsmálum milli sjúkrahúsyfirvalda og yfirlækna. Sigurður gagnrýnir starfsmannastefnu Landspítala háskólasjúkrahúss á þá leið að yfirlæknar megi ekki vinna utan spítalans, og segir hana leggja fjötra á menn en þó sé verst að þar með falli milli skips og bryggju þjónusta yfirlæknanna við sjúklinga sína sem þeir hafi sinnt á stofum sínum en hafi ekki aðstöðu til að sinna á Landspítalanum. Þar bitni sameiningin líka á sjúklingum. Einnig talar hann um að valfrelsi lækna sé skert eftir sameininguna þar sem læknar hafi nú aðeins einn stóran vinnustað að leita til í stað tveggja stórra sjúkrahúsa.
Mest lesið Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Innlent Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Innlent Fjórir látnir eftir skotárás á Manhattan Erlent Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Innlent Maxwell biðlar til Hæstaréttar Erlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Dóttirin í Súlunesi ákærð Innlent Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Erlent „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Innlent Fleiri fréttir Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Fundaði með Guterres: Tveggja ríkja lausnin sé eina lausnin Ungir menn staðnir að því að skjóta gelkúlum á vegfarendur Enn gýs úr einum megingíg og virknin nokkuð stöðug Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Sjá meira