Hjalti fer fyrir ísbjarnastarfshópi 18. júní 2008 17:06
Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri náttúruauðlinda hjá Umhverfisstofnun, verður formaður starfshóps sem umhverfisráðherra hefur skipað og á að vinna tillögur vegna hugsanlegrar landtöku hvítabjarna hér á landi. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag er hópurinn skipaður eftir að tveir hvítabirnir komu hingað til lands á tveggja vikna tímabili, síðari í fyrradag. Starfshópur ráðherra á við vinnu sína að taka mið af reynslunni í þessi tvö skipti og viðbrögðum við komu bjarnanna. Enn fremur mun hópurinn leita sem víðast eftir reynslu og þekkingu annarra á þessu sviði og hefur Carsten Gröndahl, yfirdýralæknir dýragarðsins í Kaupmannahöfn, samþykkt að vera starfshópnum til ráðgjafar. Aðrir sem skipa hópinn eru dr. Guðmundur A. Guðmundsson, dýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir fyrir Skagafjarðar- og Eyjafjarðarumdæmi, og Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra fyrir 1. september. Þá segir í tilkynningu umhverfisráðuneytisins að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi farið í eftirlitsflug um Hornstrandir í dag til að kanna hvort hvítabirnir finnist á svæðinu. Eftirlitið fer fram í nánu samstarfi við Umhverfisstofnun og Jón Björnsson, starfsmaður stofnunarinnar, var með í för við eftirlitsflugið í dag. Landhelgisgæslan mun leita víðar á næstu dögum auk þess sem hefðbundnu ískönnunarflugi á Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar verður haldið áfram. Umhverfisstofnun vinnur nú að því fyrir umhverfisráðuneytið að taka saman kostnað sem til féll vegna tilraunar við að bjarga hvítabirninum í Skagafirði í gær. Vonast er til að þeirri vinnu ljúki í næstu viku eftir því sem segir í tilkynningunni.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Fleiri fréttir Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Sjá meira