Klopp um meintan leikaraskap Salah: Þurfum ekki að sjá blóð til að það sé brot Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2019 13:00 Mohamed Salah fiskar hér víti á móti Brighton á dögunum. Getty/Andrew Powell
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sá enga ástæðu til að tala við Mohamed Salah um meintar dýfingar hans þrátt fyrir talsverða umfjöllun í enskum fjölmiðlum. Jürgen Klopp viðurkennir að það hafi ekki verið brotið á Mohamed Salah þegar hann fór í grasið á móti Crystal Palace í síðasta deildarleik en sagði jafnframt að það sé eina atvikið hjá Egyptanum. Í hin skiptin hafi verið réttilega dæmt víti.Claims that Mohamed Salah dives are unwarranted, insists Jurgen Klopp. @_ChrisBascombe reports https://t.co/lEQexoUEeT — Telegraph Football (@TeleFootball) January 29, 2019„Þetta er fyrsta atvikið þar sem hann fellur án þess að fá víti og þú ert að tala um öll hin atvikin,“ sagði Jürgen Klopp aðspurður á blaðamannafundi fyrir Leicester leikinn í kvöld. „Það þarf ekkert að ræða hin atvikin því þar voru réttilega dæmd víti,“ sagði Klopp. „Það er fullt af öðrum atvikum í deildinni sem eru miklu augljósari en enginn er að tala um þau af því að það er ekki City, ekki United, ekki Liverpool og ekki Arsenal eða Chelsea. Allir hinir virðast hafa leyfi til að gera þetta við og við og það er ekkert fjallað um það sem er í fínu lagi,“ sagði Klopp. „Allar vítaspyrnurnar sem Salah hefur fengið hafa verið víti en fólk talar um þær eins og það hafi hálfgerðar dýfingar. Við þurfum ekki að sjá blóð til að það sé dæmt brot í fótbolta. Ég ætla ekki að ræða þetta meira og hef ekki rætt þetta við hann sjálfan,“ sagði Klopp. Leikur Liverpool og Leicester fer fram á Anfield í kvöld en þar getur Liverpool liðið náð sjö stiga forystu á Manchester City á toppi deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 20.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport.Klopp og Salah.vísir/getty
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira