Sarri: Eden Hazard má fara frá Chelsea ef hann vill það Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2019 15:00 Eden Hazard. Getty/Marc Atkins
Maurizio Sarri, knattspyrnustjóri Chelsea, setur sig ekki upp á móti því að Eden Hazard fari frá félaginu vilji Belginn það sjálfur. Sarri tekur það fram að hann vill helst að Eden Hazard spili áfram með Chelsea en að félagið muni ekki standa í vegi fyrir leikmanninum vilji hann komast til annars félags. Það félag þarf reyndar að borga vel fyrir hann en það er önnur saga. Eden Hazard hefur verið stanslaust orðaður við Real Madrid og hann hefur sjálfur lýst yfir áhuga á að fara til Madrídar. Chelsea er að reyna að endurnýja samning sinn við Hazard sem rennur út sumarið 2020. Takist það ekki getur Belginn farið frítt eftir aðeins eitt og hálft ár."Eden is 28. If he wants to go, I think he has to go."https://t.co/hOB55vM6ztpic.twitter.com/2VXwHna2Cx — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 30, 2019 Sarri vill aftur á móti alls ekki missa hinn unga Callum Hudson-Odoi frá félaginu en þýska stórliðið Bayern München vill fá þennan efnilega leikmann. „Staðan er önnur hjá Eden. Hann er orðinn 28 ára gamall og ef hann vill fara þá held ég að hann eigi að fara,“ sagði Maurizio Sarri. „Auðvitað vonast ég til að hann vilji vera hér hjá okkur,“ sagði Sarri. Eden Hazard kom til Chelsea árið 2012 og hefur spilað lykilhlutverk í tveimur meistaratitlum og bikartitlinum á síðasta ári. Hann er með 10 mörk og 10 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira