Lífið

Smábollur á bolludaginn

Elín Albertsdóttir skrifar
Bollur er hægt að útbúa á margan hátt.
Bollur er hægt að útbúa á margan hátt.

Bolludagur er í dag. Flestir hafa einhvers konar bollur á borðum, ekki bara rjómabollur heldur einnig kjöt- eða fiskbollur. Hægt er að gera margvíslegar útgáfur af bollum.

Það er vissulega hægt að hafa venjulegar farsbollur á bolludag. Er ekki samt gaman að breyta aðeins til og hafa annars konar bollur? Það er hægt að bera bollurnar fram á ýmsan hátt, til dæmis í míní hamborgarabrauði, pítubrauði eða bara eins og þær koma fyrir. Hér koma nokkrar uppskriftir ef einhver vill prófa.

Tapas kjötbollur fyrir fjóra

Litlar kjötbollur geta verið fingramatur í veislum en þær eru ekki síður góðar í kvöldmat. Hægt er að krydda þær á ýmsan hátt. Þessi uppskrift er með litlum, vel krydduðum bollum.

400 g svínahakk

2 skalottlaukar

½ rauður chilli-pipar

1 tsk. hafsalt

½ tsk. nýmalaður pipar

½ tsk. múskat

1 tsk. óreganó

2 msk. brauðrasp

1 egg

2 msk. smjör

1 msk. smátt skorið timían

2 hvítlauksrif

Skerið lauk og chilli-pipar mjög smátt og blandið saman við hakkið ásamt salti, kryddi og brauðraspi. Hrærið vel saman og bætið egginu við. Útbúið litlar bollur með lófunum.

Steikið bollurnar upp úr smjöri á meðalheitri pönnu. Bætið hvítlauk og timían á pönnuna í lok steikingartímans og lækkið hitann. Látið allt malla í nokkrar mínútur og hreyfið bollurnar á pönnunni.

Berið fram með salsa, hvítlaukssósu og góðu brauði eða öðru eftir smekk.

Kjötbollur með spagettí er vinsæll fjölskyldurétturGetty Images

Kjúklingabollur með sítrónu og mango chutney fyrir fjóra

Kjúklingabollur eru mjög góðar. Hægt er að bera þær fram með sósu, grænmeti og kartöflum. Sítróna og mango chutney gefa bollunum skemmtilegt bragð.

800 g kjúklingahakk

1 tsk. hafsalt

¼ tsk. nýmalaður pipar

3 hvítlauksrif

1 laukur, mjög smátt skorinn

Rifinn börkur af einni sítrónu

1 ½ msk. mango chutney

1 tsk. chilli-mauk (eða sósa)

1 egg

2 msk. olía eða smjör til steikingar

Saltið hakkið og hrærið vel saman ásamt öðrum innihaldsefnum. Mótið litlar bollur og steikið þær við meðalhita.

Berið bollurnar fram með salati, hvítlaukssósu og skreytið með sítrónubátum.

Kjötbollur eru góðar í samlokur.Getty Images

Kjötbollur með spagettí í tómatsósu fyrir fjóra

Mjög vinsæll fjölskylduréttur sem auðvelt er að útbúa.

600 g nautahakk

60 g parmesanostur

2 hvítlauksrif, rifin eða pressuð

½ tsk. salt

½ tsk. pipar

Tómatsósa

2 msk. olía

1 laukur, smátt skorinn

1 stórt hvítlauksrif, smátt skorið

1 dós tómatar í bitum

2 msk. tómatmauk

1 tsk. sykur

1 dl kjötsoð

2 msk. basil, smátt skorið

½ tsk. salt

½ tsk. pipar

500 g spagettí (eða tagliatelle eftir smekk)

Blandið öllu saman í nautahakkið og mótið litlar bollur. Brúnið þær á heitri pönnu upp úr smjöri og olíu. Lækkið hitann og steikið áfram í 6-8 mínútur.

Hitið olíu á annarri pönnu og steikið lauk og hvítlauk. Látið mýkjast en ekki brenna. Bætið tómat og tómatmauki út á pönnuna ásamt sykri og soði. Sjóðið upp og látið sósuna malla í 15 mínútur. Bætið basil, salti og pipar við í lokin. Sumir vilja mauka sósuna með töfrasprota en það er smekksatriði.

Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á umbúðum. Um það bil 80-100 g á mann. Setjið pastað út í sósuna í lokin ásamt bollunum. Stráið parmesan-osti yfir. Það er reyndar líka gott að setja smávegis í sósuna á meðan hún mallar.

Síðan er bara að velja sér uppskrift og njóta sem allra best.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×