Frændi Steven Gerrard með Liverpool til Bandaríkjanna Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. júlí 2019 16:30 Bobby Duncan er átján ára gamall framherji vísir/getty
Bobby Duncan, ungur frændi Steven Gerrard, er í hópi Liverpool sem ferðast til Bandaríkjanna í æfingaferð. Jurgen Klopp getur ekki tekið alla leikmenn sína með til Bandaríkjanna þar sem margir þeirra fengu lengra sumarfrí. Sadio Mane, Mohamed Salah, Naby Keita, Alisson Becker og Roberto Firmino voru allir með landsliðum sínum í Afríkukeppninni og Copa America og fá því lengra sumarfrí. Xherdan Shaqiri er meiddur á kálfa og verður ekki með Liverpool næstu vikurnar. Aðeins sextán leikmenn mættu til æfinga eftir sumarfrí í byrjun vikunnar. Því ákvað Klopp að taka unga leikmenn úr akademíu Liverpool inn í æfingahóp aðalliðsins. Duncan og Paul Glatzel fá báðir að fara til Bandaríkjanna en þeir skoruðu 60 mörk samanlagt fyrir U18 lið Liverpool á síðasta tímabili. „Það er erfitt að fara beint inn í aðalliðið því við erum með mjög sterkan hóp. Þessir strákar eru framtíðin okkar ef þeir vilja vera það, en það er spennandi fyrir þá að koma með okkur í þessa æfingaferð,“ sagði Klopp. „Sóknarlína okkar frá síðasta tímabili kemur seint úr fríi svo þeir munu fá leiktíma. Ekki bara gegn Tranmere heldur líka í Bandaríkjunum gegn Borussia Dortmund og hinum liðunum.“ „Þegar þú ert hjá félaginu þá munu dyrnar inn í aðalliðið opnast. En þeir þurfa að fara í gegnum dyrnar sjálfir, við opnum bara hurðina en ýtum þér ekki í gegn.“ Liverpool mætir Tranmere og Bradford í tveimur æfingaleikjum í þessari viku áður en liðið heldur til Bandaríkjanna. Þar mæta þeir Dortmund, Sevilla og Sporting.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Íslenski boltinn Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti „Margt sem við þurfum að laga“ Körfubolti KA-menn brotlentu í Garðabæ Handbolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Sjá meira