Jafnt á Molineux

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Doherty tryggði Úlfunum stig.
Doherty tryggði Úlfunum stig. vísir/getty
Wolves og Sheffield United skildu jöfn, 1-1, á Molineux í Wolverhampton í dag.

Wolves er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 20 stig, einu stigi meira og einu sæti ofar en Sheffield United.

Úlfarnir eru taplausir í níu deildarleikjum í röð en Sheffield United í sjö deildarleikjum í röð.

Sheffield United náði forystunni strax á 2. mínútu þegar Lys Mousset skoraði eftir sendingu frá George Baldock, fyrrverandi leikmanni ÍBV.

Matt Doherty jafnaði fyrir Úlfana á 64. mínútu og þar við sat.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira