Bíó og sjónvarp

BBC mælir með þáttunum Brot: „Finnum fyrir mikilli eftirvæntingu og spennu“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Menningarvefur BBC hvetur fólk til að horfa á The Valhalla Murders eða Brot.
Menningarvefur BBC hvetur fólk til að horfa á The Valhalla Murders eða Brot. Mynd/Skjáskot
Menningarvefur BBC birti um helgina lista yfir 10 sjónvarpsþætti sem „vert væri að horfa á“ í vetur. Á þeim lista eru þættirnir The Valhalla Murders, sem á íslensku kallast Brot. Þættirnir verða frumsýndir á RÚV þann 26. desember næstkomandi og fara svo inn á Netflix. BBC mælir sérstaklega með þáttunum fyrir aðdáendur þáttanna Brúin og Ófærð.

„Þetta er náttúrulega ótrúlega mikill heiður að vera nefndir á þessum lista samhliða þessum seríum og finnum við fyrir mikilli eftirvæntingu og spennu fyrir þáttunum hér heim og erlendis,“ segir Davíð Óskar Ólafsson einn leikstjóra þáttanna í samtali við Vísi. Hann segir að þættirnir séu nú á lokametrunum í eftirvinnslu en þeir eru framleiddir af Truenorth og Mystery Productions .

BBC mælir sérstaklega með þáttunum fyrir aðdáendur þáttanna Brúin og Ófærð.Skjáskot/BBC
Þórður Pálsson á hugmyndina að þáttunum og leikstýrir þeim ásamt Davíð Óskari Ólafssyni og Þóru Hilmarsdóttur. Þórður var nýútskrifaður frá The National Film and Television School í Bretlandi þegar hugmyndin að þáttunum kviknaði. Handrit skrifa þau Margrét Örnólfsdóttir, Óttar Norðfjörð, Mikael Torfason og Otto Geir Borg. Þættirnir hlutu á síðasta ári styrkveitingu frá Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum en eru fjármagnaðir af Kvikmyndamiðstöð Íslands, RÚV og Netflix.

„Þættirnir fjalla um fyrsta íslenska raðmorðingjann. Það eru framin tvö morð á Íslandi á mjög stuttum tíma þar sem bæði fórnarlömbin eru myrt á sama hátt. Það eru þó engin tengsl á milli þeirra, sem gerir þetta enn þá erfiðara fyrir lögregluna því morð á Íslandi eru yfirleitt ástríðuglæpir. Lögreglan er því undir mikilli pressu og fá áhorfendur að fylgjast með rannsóknarlögreglumönnum reyna að leysa morðgátuna. Svo koma fjölmiðlar inn í þetta og þeir setja pressu á lögregluna og velta upp spurningunni hvort lögreglan á Íslandi geti höndlað svona stórt mál,“ sagði Þórður um þættina í samtali við Vísi.

Með aðalhlutverk fara þau Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors. Stiklu fyrir þættina má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Þættir um raðmorðingja á Íslandi í bígerð

Veturinn 2018 verða sjónvarpsþættirnir The Valhalla Murders frumsýndir á RÚV. Þættirnir fjalla ekki bara um rannsókn dularfullra morðmála heldur einnig um einkalíf tveggja rannsóknarlögreglumanna sem stýra rannsókninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×